
Ok, er ég einn um það hér á Íslandi að vera skíthræddur um ef Trump nær aftur kjöri í Bandaríkjunum? Þá mun það vera endalok lýðræðisins í Bandaríkjunum og það mun smita út frá sér til Evrópu. Ég meina, Bandaríkin eru á góðri leið með að verða fasistaríki eins og Rússland, og hvernig fasistinn Trump talar er ógnvekjandi. Hann vill draga Bandaríkin úr NATO, hann vill ekki styðja Evrópu lengur, hann mun færa Rússum Úkraínu á silfurfati. Rússar munu fá frjálsan vilja til að ráðast inn í önnur evrópsk lönd eins og Georgíu og Moldóvu. Í alvöru, mér finnst ótrúlegt að fólk sé ekki meira vakandi yfir þessari raunverulegu ógn. Og það er alveg ótrúlegt að horfa upp á þennan falska áróður í vesturlöndunum, vesturlandsbúar hafa orðið fórnarlömb allskonar samsæriskenninga og röngum upplýsingum. Ég las t.d. frétt um daginn að Rússar hafa verið að stunda áróðursmaskínu gegn Úkraínu og platað milljónir vesturlandabúa um ástandið í Úkraínu (sjá frétt[ BBC](https://www.bbc.com/news/world-europe-67687449?fbclid=IwAR1s9EV5XmlUXE0nIM_B645dL_mx0F2PZwL7aBBKfF1eXLbVtEl0p1xQq7k)).
Þetta er náttúrulega það sem Rússar gera; þeir eru með gífurlega áróðursmaskínu eins og internettröll og bota sem stjórna narratívunni hér í vesturlöndunum í gegnum alla samfélagsmiðla.
Mér finnst svolítið vanta meiri gagnrýna hugsun hér á vesturlöndunum; við virðumst glepjast af allskonar áróðri án þess að factcheck’a hlutina.
Svo heyri ég alltaf, ‘Ohh, Biden er orðinn of gamall blabla.’ Já, hann er orðinn gamall, en guð minn góður, ætlar fólk virkilega að fórna lýðræðinu og kjósa Trump, sem er ekki nema 3-4 árum yngri en Biden, og Trump sem er lygasjúkur narsissisti og hefur náð að plata milljónir manna með allskonar áróðri, lygum og samsæriskenningum?Það er engin tilviljun að margir af fyrrverandi samstarfsmönnum Trumps, embættismönnum og fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna hafa varað við Trump. Einn fyrrverandi sterkasti stuðningsmaður Trumps, Liz Cheney, er einnig að vara við honum. Hún skrifaði nýlega bók um þetta efni og talaði um árásina þann 6. Janúar. Margir grjótharðir repuklínar hafa varað við honum.
Ég hvet fólk til að lesa um Project 2025 ([Wikipedia](https://en.wikipedia.org/wiki/Project_2025)); það er skelfilegt. Ef Trump eða einhver annar íhaldssamur vinnur forsetakosningar í USA, þá mun þetta manifestó verða komið á strax í Bandaríkjunum.
Ég hef líka verið að lesa mig til um og skoða samspil Rússa og Hamas/Íran. Ég trúi því að Rússar hafi eitthvað með árásina 7. október að gera, með það markmið að sundra Vesturlöndum, búa til kaos og afvegaleiða NATO, Bandaríkin, ESB og önnur vesturlönd frá stríðinu í Úkraínu. (Sjá[ The Hill](https://thehill.com/opinion/international/4250708-putins-fingerprints-are-on-hamas/?fbclid=IwAR27oxHXYpSS4fysGed1nzPb1T_TH64Sj0aaBdwQLsVmOoeHBik1VQidWsw))
PS. Ég veit að þetta er íslenskur þráður, en ég vil bara vara fólk við þessari raunverulegu ógn. Íslandi er mjög viðkvæmt fyrir ef alþjóðavæðingin veikist, sem mun gerast ef Trump kemst aftur til valda. Sigur Trumps er sigur Pútíns. Og trúið mér, það eru alls ekki góðar fréttir fyrir Evrópu og lýðræðið okkar.
Og btw þessi frasi ‘JÁ þEgAr TrUmP vAr FoRsEtI vOrU eNgIn sTrÍð Í hEimInUm’ RANGT.
Það sem gleymist líka er að forsetatíð Trumps var ekki aðeins merkt af átökum og stríðsrekstri, heldur einnig af stórpólitískum ákvörðunum sem höfðu djúpstæð áhrif á alþjóðleg samskipti og öryggi. Viðskiptastríðið sem hann hóf gegn Kína var eitt af þessum atriðum, en það skapaði ekki aðeins spennu milli þessara tveggja stórvelda, heldur hafði einnig slæmar afleiðingar fyrir bæði vesturlöndin og Bandaríkin í formi viðskiptaáhrifa og óstöðugleika í alþjóðlegu hagkerfi.
Auk þess hafði viðurkenning Trumps á Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels veruleg áhrif, þar sem þessi ákvörðun jók spennu í Mið-Austurlöndum og hafði flóknar afleiðingar í svæðisbundnum deilum og öryggismálum.
Þá má ekki líta fram hjá því hvernig Trump hvatti til árása á þinghúsið þann 6. janúar 2021, atburður sem markaði dýptina í pólitískum sundrungum innan Bandaríkjanna og varð til þess að grafa undan grundvallarstoðum lýðræðisins í landinu. Þessi atburður var ekki aðeins áfall fyrir Bandaríkin, heldur einnig fyrir allan heiminn sem fylgdist með.
Á hermálalega sviðinu hélt Trump áfram þátttöku Bandaríkjanna í mörgum átökum um allan heim. Þótt hann hafi ekki stofnað til nýrra stórstríða, hélt hann áfram með átök sem hafði þegar verið hafin og eflt sumar heraðgerðir. Bandaríkjaher hélt áfram aðgerðum í Afganistan og Írak, þar sem barist var gegn hryðjuverkasamtökum og öðrum uppreisnarhópum. Trump stýrði einnig áframhaldandi aðgerðum gegn Íslamska ríkinu (ISIS), og drónaárásir og sérstakar heraðgerðir voru áberandi undir stjórn hans í löndum eins og Sómalíu og Jemen. Hann lét líka drepa Qasem Soleimani, æðsta herforingja Írans.
Var þetta Trump að kenna? Nei, það er ekki rétt að segja að þessi átökin í Afganistan, Sýrlandi, Írak, Jemen, Líbíu, Sómalíu, Úkraínnu, Nagorno-Karabakh verið honum að kenna. Hins vegar hélt hann áfram stefnu fyrri forseta Bandaríkjanna. Það er mikilvægt að hafa í huga að hvorki Obama, Trump né Biden hafa hafið ný stríð. Hins vegar var það undir stjórn Bush að Bandaríkin hófu stórar heraðgerðir, sérstaklega innrásina í Írak árið 2003. Því er ekki hægt að kenna Trump einum um framhald þessara átaka, þar sem hann var að fylgja fordæmi fyrri forseta
by numix90
10 comments
Þetta reddast
Ég er ekki kani, gæti varla verið minna sama um hvert bandaríkin sem by the way eru hræðilegt land á allavegu er heading.
> Ok, er ég einn um það hér á Íslandi að vera skíthræddur um ef Trump nær aftur kjöri í Bandaríkjunum? Þá mun það vera endalok lýðræðisins í Bandaríkjunum
Fólk túlkar heimsmálin á mismunandi hátt, það er langt síðan að lýðræðið í Bandaríkjunum tók enda, ég nennti ekki að lesa þetta allt en þú ættir að vera hræddari við þessa gegnum spillta bandarísku Lockheed Martin / Boeing stríðsverktakar og bandaríska þingið pólitík heldur en nokkurntímann Rússland eða Trump.
Boeing eða Lockheed Martin: Heyrðu okkur vantar sirka 500 milljónir dollara til þess að tækla þessa framleiðslu. Bandaríska þingið = 500? Við eigum fullt af hlutabréfum í ykkur og það þarf að dæla peningum í styrktaraðilana okkar, hérna, takið frekar 800 milljónir dollara.
Trump vill ekkert stríð, Rússland og Pútín vilja ekkert stríð og Pútín er ekki það heimskur heldur til að fara æsa leikinn eitthvað frekar við NATO, það er einmitt þessi ógeðslega núverandi pólitík í Bandaríkjunum sem vill að það sé stríðsástand í heiminum allan ársins hring og ef þú berst á móti þeirri stefnu að þá færðu skotmark á þig og þetta skotmark er búið að heilaþvo þig.
Hvort sem Trump nær kjöri eða ekki þá er þróun almenningsálits í Bandaríkjunum alveg skýr. Kosning Trump er einfaldlega afleiðing þess. Kjósendur þar hafa minni áhuga á bandalögum þjóða og vilja að stjórnvöld fókusi á innanríkismál og skammtímahagsmuni.
Til lengri tíma litið mun þetta hafa gífurleg áhrif á alþjóðamálin. Pax Americana tímabilið er að líða undir lok. Íslensk stjórnvöld ættu að byrja að íhuga hvernig hægt er að tryggja öryggi landsins án þess að stóla á Bandaríkin. Evrópusambandið væri ein leið, en þar sem það er ekki stuðningur við inngöngu í ESB þá væru tvíhliða samningar við önnur Evrópulönd líklega eina leiðin.
Skal viðurkenna að þetta er áhyggjuefni þar sem fasismi er ekki aflokað vandamál heldur vandamál allra. Við sjáum nú þegar svipaðar kenndir í nokkrum Evrópulöndum þó þeir séu ekki Christo-fascist eins og kaninn elskar. Gallinn líka við fasista er að þeir vilja oft breiða út boðskapinn.
Hins vegar grunar mig að þetta allt verði smá vakning fyrir Evrópu en við sjáum nú þegar margar Evrópuþjóðir líta á frekari vopnavæðingu(Pólland er t.d. harðákveðið að falla ekki undir Rússland aftur) frekar en að treysta alfarið á BNA til að bjarga þeim alltaf. Þannig að ef USA leggur á brott þá er það aðallega Úkraína sem þjáist þar sem kaninn hefur verið að útvega þeim gífurlega mikið af vopnum og án þeirra þá mun Úkraína ekki hafa mikið milli handanna.
Annars myrkir tíma framundan. Fasteignamarkaðurinn í rústi, verðbólgan há og stríð og þjóðarmorð í gangi.
Held þú sért mikið að predika yfir kórnum hérna, einungis vitleysingjar myndu vilja Trump aftur í forsetastólinn og afleiðingarnar yrðu hrikalegar.
Biden er því miður bara skárri kosturinn af tvennu illu og það hefur ekkert með aldur hans að gera heldur bara almenna vanhæfni. En tvíflokkakerfi Bandaríkjanna býður bara ekki uppá annað og ekkert mun lagast fyrr en því er gjörbreytt.
Trump hefur verið forseti áður. Við vitum hvernig forseti hann er. Það er miklu minni óvissa núna.
Við vitum líka að Trump er alveg saman um heiminn utan Bandaríkjanna. Hann sér bara USA.
Í áratugi hefur fólk krafist þess að Bandaríkin hætti að blanda sér í mál annarra ríkja. Dragi her sinn í burtu og hætti að vera “alheimslöggan”.
Nú er það að verða að veruleika.
Ég hef helst áhyggjur af áframhaldinu.
EF Trump verður forseti, hvað þá?
Mun Nato halda áfram í núverandi mynd?
Munu hinir meðlimir Nato kjósa Bandaríkin út vegna líklegrar umpólunar afstöðu Bandaríkjanna gagnvart Úkraínu?
Spilar þá afstaða Bandaríkjanna gagnvart Ísrael þar inní?
Eins ef Ísrael verður dæmt ábyrgt á þjóðernishreinsun fyrir alþjóðadómstólnum, þá er komið gilt fordæmi til að beita viðskiptatakmörkunum gegn Ísrael.
Breytir það svo eitthvað hver hegðun Ísraelskra yfirvalda verður gagnvart Palestínu?
Hvort er líklegra að Ísrael herði eða láti af árásum sínum?
Ég er eiginlega alveg villtur þegar kemur að þessu, ég er ekkert nema stórt spurningamerki.
Ég á ekki til orð. Yfir bæði pistlinum og kommentunum.
Rússar hafa enga hernaðarlega getu til að ráðast inn í NATO land og það meir að segja þó Bandaríkjamenn væru á bak og brott. Hernaðargeta Rússlands var stórkostlega ofmetinn og mun þurfa mörg ár að komast á sama stað og hún var við upphaf innrásar inn í Úkraínu. Hinsvegar var efnahagur Rússlands vanmetinn og kom það mjög á óvart hversu stöðugur hann virðist vera og lítið bitinn af viðskiptabönnum vesturlanda en það virðist vera að Kínverjar og Indverjar komi sterkt inn þar. Einnig kemur framleiðsla Rússlands á óvart en þeir eru að framleiða mikið meira af skotvopnum umfram það sem vesturlöndin geta sent Úkraínumönnum og er það ávísun á það að átökin í Úkraínu séu og verði áfram þreytustríð (War of attrition). Rússland er mögulega komin í stríðstímaefnahag (war economy) og verður áhugavert að sjá hversu lengi þeir geti staðið í því en á meðan þeir geta selt hráefni, gas og olíu til Indverja og Kínverja ættu þeir að geta haldið áfram á kostnað borgara sinna en ég hef séð í fréttum að víðtækt rafmagnsleysi sé að hrjá Rússa í ýmsum borgum en mögulega er það áróður en það er að verða erfiðara og erfiðara að sía út þessi dægrin.
​
Ég held að afstaða Bandaríkjamanna eftir að Rússland komu upp um hernaðargetu sína sé að þeim stafi miklu meiri efnahagsógn af Kína. Þeir eru frekar til í að losa resourca frá Úkraínu til að geta haft möguleika til að halda úti Proxystríði við Kínverja ráðist þeir inn í Taíwan. Mögulega eru búnar að myndast blokkir (mjög einföld mynd sem ég dreg upp) nú þegar sem eru vesturveldin á móti Rússum, Kínverjum, Indlandi, Íran og fleirum og mögulega eru átökin í Palestínu-Ísrael kynd áfram af pólitík til að opna á fleiri fronta þar sem Bandaríkin þurfa að verjast.
Vestur-Evrópa mun þurfa að vera mun sjálfstæðari varðandi orku og hrávöru og mögulega er verðbólga hér (og í Evrópu) birtingamynd af lokuðu aðgengi sem V-Evrópa hafði af ódýrri og auðsóttri hrávöru og orku frá Rússum.