
afhverju er þetta ekki meira í fréttum?
[https://www.mannlif.is/frettir/innlent/rafrettumarkadurinn-a-islandi-notrar-vegna-banns-thetta-er-algjor-kuvending/?fbclid=IwAR0-pIvkegoufhYe8pF1PxuDQtz6sFn-8MqZcj3wpD62YHYhyDEAIob73zQ](https://www.mannlif.is/frettir/innlent/rafrettumarkadurinn-a-islandi-notrar-vegna-banns-thetta-er-algjor-kuvending/?fbclid=IwAR0-pIvkegoufhYe8pF1PxuDQtz6sFn-8MqZcj3wpD62YHYhyDEAIob73zQ)
” **Einnota rafrettur bannaðar á Íslandi** ”
​
Frá og með fyrsta febrúar geta innflutningsaðilar hvorki flutt inn einnota rafrettur, né fjölnota rafrettur sem eru með stærri en tveggja millilítra tankastærð og verða verslanir að klára byrgðir sínar fyrir 31. maí næstkomandi.
​
Samkvæmt heimildum Mannlífs skellur á bann um næstu mánaðarmót á innflutningi á bæði einnota og fjölnota rafrettum sem ná yfir tveggja millilítra tankastærð en verslanir þurfa að klára birgðir sínar fyrir 31. maí. Húsnæðis og mannvistastofnun tilkynnti rafrettubúðum þessa ákvörðun í nóvember eða desember síðastliðnum en ástæðan ku vera sú að vörurnar standist ekki kröfur Evrópusambandsins.
Mannlíf talaði við sölustjóra rafretta, sem ekki vildi koma fram undir nafni og spurði hann út í málið. „Það sem er í rauninni að taka gildi er það að allar græjur, hvort sem þær eru einnota eða fjölnota sem eru með yfir tveggja millilítra tankastærð er að fara að verða bannaðar. Sem þýðir í rauninni það að allar einnota veipur sem við erum með í boði núna, verða ólöglegar 31. maí og við höfum bara frest þangað til, til að selja allan lagerinn. Frá fyrsta febrúar megum við ekki flytja þetta inn.“
[https://www.visir.is/g/20242517229d/segir-neytendur-osatta-med-miklar-breytingar-a-rafrettureglum](https://www.visir.is/g/20242517229d/segir-neytendur-osatta-med-miklar-breytingar-a-rafrettureglum)
Reglur um rafrettur taka gífurlegum breytingum um mánaðamótin. Neytendur eru alls ekki sáttir að sögn verslunareiganda sem vill meina að breytingarnar séu slæmar fyrir alla sem koma að viðskiptunum, sem og umhverfið.
[Breyting á reglugerð um innihaldsefni nikótínvara](https://island.is/reglugerdir/nr/1153-2023) tekur gildi um mánaðamótin. Breytingin er tilkomin vegna Evróputilskipunar en samkvæmt henni mega ekki vera meira en tveir millilítrar af nikótínvökva í einnota rafrettum. Þá má ekki selja áfyllingarílát fyrir fjölnota rafrettur sem innihalda meira en tíu millilítra af vökva. [Mannlíf vakti nýlega athygli á þessari breytingu. ](https://www.mannlif.is/frettir/innlent/rafrettubanndi-samkvaemt-tilskipun-evropusambandsins-meiri-ahyggjur-af-nyjum-neytendum-nikotins/)
er bara verið að kæfa veipið? og helst eins hljóðlega og hægt er? afhverju er enginn umfjöllum um þetta?\*
ég sá þetta fyrst í mest lesið þegar þetta kom. nú er mjög erfitt bara að finna þessar fréttir
by ThereisDawn
3 comments
>” Einnota rafrettur bannaðar á Íslandi ”
Gott. Einnota rafrettur eru galið fyrirbæri.
Finnst samt restin af þessum breytingum vera frekar heimskar og átta mig eki einu sinni á hverju er verið að reyna að áorka. Ef markmiðið er að takmarka notkun þá virkar það ekki einu sinni, heldur gerir það bara örlítið meira vesen. Ég efast um að það sé að fara að stöðva neinn frá að veipa að þurfa að fylla á tankinn aðeins oftar.
og hvað? Þetta er evróputilskipun svo sama hvað þú og aðrir röflið fer þetta í lög. Ekki eins og þetta sé bannað bara gert óhentugra að veipa.
“Rafrettubannið” eins og þeir setja fram á mannlíf er t.d. bull.
“Einnota raftæki” er hugtak sem allir sem eitthvað vit hafa á umhverfisvernd og gáfulegri notkun á náttúruauðlindum ættu að skilja að á ekkert erindi við okkur á 21. öldinni.
Ég er grjótharður veipari og fagna þessu. Drullist til að fá ykkur almennilegar fjölnota græjur gott fólk og lærið að nota þær.
Minna spenntur fyrir þessum takmörkunum á tankastærð. Fatta ekki alveg hver röksemdarfærslan er fyrir því.