
Jemen er að verða fyrir barði Bandaríkjanna og Bretlands fyrir að halda út efnahagsþvingunum sem heimurinn ætti að hafa sett á Ísrael fyrir mörgum áratugum
by AlternativeSpell8707

Jemen er að verða fyrir barði Bandaríkjanna og Bretlands fyrir að halda út efnahagsþvingunum sem heimurinn ætti að hafa sett á Ísrael fyrir mörgum áratugum
by AlternativeSpell8707
4 comments
Af hverju er Jemen að neyða okkur til að lemja sig. Hversvegna eru minnimáttar alltaf að neyða okkur til að lumbra á þeim? Hvers eigum við í vestuheim að gjalda?! [Við erum góða liðið!] (https://www.youtube.com/watch?v=ooMCvGlbbc4) Af hverju eru allir svona vondir við okkur!! :'(
Í stríði Sáda og Bandaríkjanna við Jemen dóu amk 377.000 manns, þar af 70% börn undir fimm ára
Sádi arabar eru miklu verri við yemena en Bretar og Bandaríkjamenn… Afhverju má ekki skammast í þeim frekar?
Djöfulsins þvæla.
Það er eitt að gagnrýna innrás Ísrael í Gaza – Sem er allt gott og blessað, skelfilegir atburðir – en ég get ekki setið á mér þegar ég sé svona mikið af ungu fólk missa sig í einhverri firringu útaf kínverska *spyware* forritinu.
Það er ekki Jemen sem er að reyna að setja upp einhverskonar *naval blockade* á Ísrael. Yfirvöld í Jemen, og Jemen sem ríki, er alveg jafn mikið á móti árásum á saklaus flutningaskip eins og restin af heiminum. Það eru Hútar sem standa fyrir þessum árásum. Jemen, eitt fátækasta ríki í heiminum, er líka að bomba Hútana og hefur verið að því síðan 2015.
Það græðir enginn neitt á því að shía jíhadistar, sem byrjuðu borgarastríð gegn Jemen og yfirvöldum í Jemen, séu að skjóta eldflaugum og gera dróna árásir á Áströlsk flutningaskip sem eru að ferja lífsnauðsynlegan varning (matvæli, lyf, orku o.s.frv) frá Malasíu til Malaví, eða frá Indlandi til Sómalíu, þar sem fæðuöryggi og líf tug-milljóna af fólki í viðkvæmri stöðu er undir. 15-20% af öllu *global trade* fer í gegnum Suez skurðinn í Rauða hafinu.
Hútarnir eru ekki Jemen. Hútarnir eru raunverulegir hryðjuverkamenn sem eru í stríði við alþjóðlega viðurkennd yfirvöld í Jemen. Hútarnir eru ábyrgir fyrir hungursneyð í Jemen sem hefur sem drepið margfalt fleiri en hafa látist á Gaza ströndinni. Hútarnir gerðu það einmitt með því að setja upp *naval blockade* þar sem engri neyðaraðstöð var hleypt inn á yfirráðasvæði þeirra í mörg ár. Bara árið 2017 dóu 50.000 börn úr hungursneyð í Jemen. Hútarnir stunda þrælahald og það er áætlað að það séu tugþúsundir þræla á yfirráðasvæðum Húta, m.a. mikið af kynlífsþrælum sem voru á flótta frá Sómalíu, Eritreu og Eþíópíu. Hútarnir nota barnahermenn óspart og samkvæmt UN er talið að yfir 2000 börn, alveg niður í tíu ára, hafi látist á vígvellinum bara milli 2020 og 2021.
Það er eitt að gagnrýna hernaðaraðgerðir Ísrael, því sú gagnrýni á vissulega rétt á sér, en Hútarnir eru ekki góðu gæjarnir. Hútarnir eru bara shía útgáfan af ISIS. Það seinasta sem US og UK vilja gera er að dragast inn í önnur blóðug átök í Mið-Austurlöndum með beinum hætti. En alveg eins og þegar US aðstoðaði Íraska herinn með loftárásum gegn ISIS frá 2015-2019, þá eru bara of mikið af saklausum lífum og hagsmunum í húfi. Lyfja-, orku- og fæðuöryggi tugmilljóna fólks í Afríku, Suður-Ameríku og Asíu er í húfi. Og þar að auki myndi það ekki hafa nein sjáanleg áhrif á innrás Ísrael þó að theocratískir jíhadi-fasistar skjóti eldflaugum og drónum á saklausa Indverja, Filippseyjinga og Nepala (sem hafa ekki neitt með Ísrael-Gaza að gera) sem vinna við að ferja lífsnauðsynlegar vörur á milli landa.