
Ég veit ekki af hverju, en mér datt allt í einu í hug lagið “Yfir til þín” úr Spaugstofunni um daginn. Og þá fylgdi (frá mér séð) hugsunin “bíddu… var ekki gerð karlakórs útgáfa af því í einhverjum lokaþættinum?”
Tekið skal fram að ég var kannski rétt svo orðin eins árs þegar þetta var birt, þannig að ég sá þetta augljóslega ekki “í beinni”, en ég horfði á best-of spóluna hjá móðurforeldrunum nógu oft á æskuárunum til að stimpla þetta í minnið. (og fjöldan allann af öðrum sketsum sem var skemmtilegt að sjá í endurhorfi fyrir nokkrum árum).
Ég man ekki eftir að nein hafi talað um þetta atriði sérstaklega, en núna þegar ég veit fyrir víst að föðuramma mín (sem nýlega lést) hafði gaman að karlakórum, þá trúi ég ekki öðru en að henni hafi verið skemmt við þetta.
Og kannski ykkur líka! Þannig að ég má til með að deila. Smá föstudags nostalgía 💖
Og já, Pálmi Gestsson er mögulega besti bassi allra tíma
[(hlekkur, vonandi stilltur á réttan tíma)](https://www.youtube.com/watch?v=OZYWyhnlkYM&t=1772s)
by turner_strait
1 comment
Yfir til þín, mín þjóð við sjónvarpsskjáinn