
Ok, ég veit að þessi frétt er frá Samstöðinni (sem er ekki hlutlaus og vinstri fjölmiðill), en þetta viðtal er við Eirík Bergmann, stjórnmálafræðing, og ég held að það sé góð ástæða til að vera á varðbergi gagnvart þessari þróun. Við sjáum þessa þróun víðast hvar í Evrópu núna, öfga hægri þjóðernishyggja og svo fasismi. Við vitum að sögulega hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft tengsl við nasismann og fasismahreyfingar. Þetta er tekið af Wikipedia: “Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi hefur flókna sögulega bakgrunn. Á fyrstu árum sínum, á 4. áratugnum, sýndu sumir meðlimir og fylkingar innan flokksins samúð með fasismann og þjóðernishyggju, sem voru útbreiddar stefnur í Evrópu á þeim tíma. Þetta var ekki einstakt fyrir Ísland, þar sem margir evrópskir stjórnmálaflokkar og hreyfingar á þeim tíma voru undir áhrifum frá vexti fasismans og þjóðernissósíalismans í löndum eins og Þýskalandi og Ítalíu.”
Það sem veldur mér miklum áhyggjum er hvernig grasrót flokksins er farin að tala. Maður fylgist bara með orðræðunni, og nú nýjast er að formaður flokksins með sína FB-færslu.
Ég ætla að vona að frjálslyndi armur Sjálfstæðisflokksins og það hugsjónasama fólk inna flokksins stoppi þessa þróun í fæðingu, því ég hef miklar áhyggjur af þróun flokksins.
Mér finnst margir flokksmenn innan Sjálfstæðisflokksins vera flott fólk, og finnst ömurlegt að sjá hvert flokkurinn stefnir.
Ég vitna í orð Eiríks Bergmanns: “Fyrr á tímum sótti Sjálfstæðisflokkurinn fylgi sitt að nokkru til þjóðernisstefnu. Spurður hvort gamall tími kunni að vera að banka upp á, segir Eiríkur að alltaf hafi verið heimili fyrir íslenska þjóðernissinna innan Sjálfstæðisflokksins.”
Við vitum að Sjálfstæðisflokkurinn er að hrynja í fylgi, orðinn 16% flokkur og sópar allt sitt fylgi núna til Miðflokksins, þannig að formaður og fleiri flokksmenn eru í örvæntingu að reyna að safna sér fylgi með því að nota hægri populisma
Mig grunar líka að grasrót flokksins eigi erfitt með að sætta sig við að í dag höfum við fleiri flokka á þingi og meira lýðræði. Við höfum mun meira úrval á kjörstað, sem ég tel vera góða þróun, en grasrót flokksins á erfitt með að sætta sig við það. Flokkurinn er ekki lengur sá ráðandi flokkur sem hann var áður, og því fara margir flokksmenn að grípa til örvæntingarfullra aðgerða, þar með talið að beita hugmyndafræðilegri taktík eins og ‘Við á móti þeim’ og populisma.
Þetta er auðvitað bara hugleiðing, hvað finnst ykkur er ég að ofhugsa þetta?
Hér er viðtalið
[https://samstodin.is/2024/01/vaxandi-fylgi-midflokks-kunni-ad-skyra-ordraedu-bjarna-ben/](https://samstodin.is/2024/01/vaxandi-fylgi-midflokks-kunni-ad-skyra-ordraedu-bjarna-ben/)
by numix90
6 comments
Mér finnst það skrítin pæling að hugsa víst að flokkurinn er að missa fylgi, í stað þess að skoða hvað þeir geti gert betur, þá er best að sækja fylgi í dreggjar samfélagsins. Það segir mér að þeir vita að stefnan þeirra á ekki erindi við hinn almenna kjósanda heldur stóla þeir á hóp sem er auðtrúa, einfalt að stjórna og mætir á kjörstað.
Veit ekki með hvort þau fari alveg þangað núna.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi verið “ekki hjálpa öðru fólki” flokkurinn svo að þau séu á móti fólki sem þarf hjálp kemur ekki á óvart.
Nú verð ég að spyrja, fellur það virkilega undir þjóðernis popúlisma að tala um að stíga á bremsurnar í innflytjendamálum árið 2024?
Ég hef aldrei kosið XD en það er eins gott að fleiri en þeir fari að tala um að slappa aðeins af í fólksflutningum til landsins, annars er mér að fara að líða mjög undarlega i kjörklefanum í næstu alþingiskosningum.
https://www.skra.is/um-okkur/frettir/frett/2023/07/13/Erlendir-rikisborgarar-busettir-a-Islandi-1.-juli-2023/
Hvaða dæmi kemur þú með til að styðja við þessa pælingu?
Eiríkur Bergmann er ekkert hlutlaus ut af því að hann er stjórnmálafræðingur, finnst hann alltaf fara mjög fínt í hatur sitt á sjálfstæðisflokknum.
Sjálfstæðismenn eru svo gyðingar vinstrimanna á Íslandi, allt sem má ekki segja um aðra samkvæmt þeim má segja um sjálfstæðismenn.
Nei, ég held þú sért ekki að ofhugsa þetta, ég held þú sért að vanhugsa þetta.
í fyrsta lagi er það hlutverk flokka og pólitíkusa að vera pópúlistar að einhverju leyti. Við erum ekki með beint lýðræði heldur fulltrúalýðræði, svo það er eins gott að þeir stingi puttanum upp í loft og finni hver vindáttin er.
Fólki er verulega misboðið þessa daga varðandi innflytjendamál, venjulegu hversdagsfólki meina ég, ekki bara öfgafólki.
Sumu fólki er beinlínis illa við grunngildi samfélagsins okkar. Tjáningarfrelsi, trúfrelsi, réttindi LGBT og kvenna. Ég hef átt samskipti við innflytjendur sem er mjög illa við allt ofantalið og nýttu hvert tækifæri til að drulla yfir slíka vitleysu.
Þeim er aldrei að fara að snúast hugur. Ef þeir breyttu viðhorfum sínum þá væru þeir útskúfaðir úr öllu nærsamfélagi sínu, fjölskyldum sínum jafnvel. Þeir hafa ekkert val. Þetta tekur í sumum tilfellum fleiri kynslóðir að aðlaga.
Þetta eru verstu tilfellin, en jafnvel í bestu tilfellunum þá er þetta samt vandamál sem þarf að vinna í. Ef við flytjum inn mörg þúsund fólks á hverju ári þá glötum við menninguni okkar, og mér er annt um menninguna okkar.
Það sem ég bið um er að hófsamir flokkar taki þetta af alvöru og leyfi sér að tala um þetta. Ef allir sem tala opinskátt um þetta eru stimplaðir fasistar þá munum við fá enn meiri öfgar, því fólk mun skilgreina sig sem fasista frekar en að una þessum stefnum. Ég vil miklu frekar hófsama miðjuflokka sem taka harðlínustefnu í innflytjendamálum en Geert Wilders.
Þjóðernishyggja er stimpill sem á ekkert við. Það er engin orðræða í gangi um mikilfengleika íslensku erfðanna, hvað ísland er betra af því að íslendingar eru æðri kynþáttur. Það er engin þjóðremba sem ég sé, ekkert hatur né ´við á móti þeim´.
Það er bókstaflega hlutverk íslenskra pólitíkusa að vernda hagsmuni íslendinga fram yfir aðra.