The proportion of all diagnosed SARS-CoV-2 cases in Iceland that required a hospital admission has gone from roughly 2.5% in mid September to 0.2% in the beginning of January 2022

8 comments
  1. Þetta kemur frá Íslenskum lækni á Twitter sem er að greina gögn frá Landspítalanum. Þessar tölur útiloka þá sem greinast með covid inni á spítalanum en eru inniliggjandi af öðrum ástæðum.

    Samkvæmt þessu hefur áhættan á því að þurfa að leggjast inn eftir *greint* covid smit farið úr 2.5% í 0.2% á undanförnum mánuðum. Auðvitað er svo fullt af smitum í samfélaginu sem eru ógreind, svo að raunveruleg áhætta er eflaust ennþá minni en 0.2%.

  2. 0.2% af 1000 eru 2, þannig að tveir á dag sem þurfa að leggjast inn skv þessu. Af hverjum 10000 þá 20 manns. Yfir heilan mánuð væri því hægt að áætla 60 manns sem þurfa að leggjast inn, ef meðaltalið helst í kringum 1000 smitgreindir á dag.

    Þetta eru tölur miðað við virkar sóttvarnaraðgerðir. Fólk í yngri kantinum (undir 40-50 ára) telja flest smitin núna og sá aldurshópur er venjulega í minni áhættu heldur en sá eldri.

    Um leið og smitin fara í gegnum eldri aldurshópana þá munum við sjá fleiri innlagnir á spítala. Eins og er þá hefur spítalinn varla undan út af Covid. Það hefur gert flókna hluti enn flóknari og er að hafa áhrif á framkvæmdir lífsnauðsynlegra skurðaðgerða til dæmis. Covid er að hafa keðjuverkandi áhrif á spítalann **og það með virkum sóttvarnaraðgerðum**. Getið þið ímyndað ykkur stöðuna með engum sóttvarnaraðgerðum eins og sumir eru að kalla eftir?

  3. Gagnrýnendur aðgerða hafa það fínt, því það er voða einfalt að segjast vera ósammála aðgerðum og gagnrýna þær án þess þurfa (eða hafa þurft) að leggja til plan sem er jafn úthugsað útfrá öllum mögulegum óþekktum, óséðum eða ófyrirséðum atburðum eða aðstæðum (e. *contingencies*).

    Fólk sem skipuleggur aðgerðir þurfa að fylgja þeim eftir, rökstyðja **alla** anga, og takast á við að afleiðingar ígrundana þeirra munu ekki bara verða að súrum pistli sem fær einungis framhaldslíf í ljósvakanum og að eldast þar eins og jógurtdós í gufubaði. Heilsa og líf ótal raunverulegra einstaklinga veltur á því að stjórnendur og álitsgjafar aðgerða sinna þessu ábyrgðarhlutverki af natni.

    Ég veit ekki hvaða náttúrulyf skuggic er að reyna að selja hérna, en það er eitthvað vísitöluyfirbragð af þessari einfeldni í honum.

  4. Hef fylgst með læknaspjallinu á FB í gegnum maka sem er læknir.

    Þar virðast allir læknarnir vera sammála um að létta takmörkunum verulega vegna þess hve mun vægara nýjasta afbrigðið er.

    Skil ekki afhverju allir hér eru enn harðir á því að halda sóttvarnaraðgerum óbreyttum þó sérfræðingarnir segi annað.

  5. Alltaf eru það sömu gæjarnir að posta misleiðandi gögnum til þess að reyna að láta ástandið líta út vægara en það er.

    Þessi sami gæji er á hverjum einasta þráð um covid að downplay-a faraldurinn en segir aldrei neitt nógu öfgafullt svo að hann sýni ekki hvað hann hugsar í alvörunni.

Leave a Reply