
Ég man fyrir árið 2018 þá var regulega skrifað um Theranos og Elizabeth Holmes hvað það væri frábært í íslenskum fjölmiðlum.
Núna get ég ekki fundið eina einustu grein um Theranos eða Elizabeth Holmes fyrir árið 2018? (Fyrir utan tvær greinar á Smartland og [Dv.is](https://Dv.is))
Skrifaði bókstaflega enginn fjölmiðill um Theranos eða Elizabeth Holmes þangað til upp komst um svikin hennar og þetta er allt einhver skrítin Mandela áhrif sem ég hef orðið fyrir.
2 comments
Nei þú kannt líklegast bara ekki (nægilega) góðar leiðir til að leita. Forvitinn að vita hvað þú reyndir.
—–
DV minntist á Theranos 7. október 2014. Líklega greinin sem þú fannst.
Smartland minntist á Theranos:
[5. mars 2015](https://www.mbl.is/smartland/frami/2015/03/05/bjo_til_606_milljarda_upp_a_eigin_spytur/)
[26. ág 2015](https://www.mbl.is/smartland/frami/2015/08/26/20_rikustu_ungmenni_heims/)
MBL.is minntist á Theranos:
[2. júní 2016](https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2016/06/02/ur_562_milljordum_i_0_2/)
[8. júlí 2016](https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2016/07/08/eigandi_theranos_settur_i_straff/)
Morgunblaðið sjálft (prentaða útgáfan):
30. júní 2016
22. mars 2018
7. júní 2018
21. júní 2018
Vb.is:
[8. okt 2014](https://www.vb.is/frettir/elizabeth-holmes-yngsti-kvenkyns-milljardamaeringurinn/110152/)
[2. nóv 2015](https://www.vb.is/frettir/evropskar-markadsskraningar-sla-theim-bandarisku-vid/122990/)
[30. nóv 2015](https://www.vb.is/frettir/einhyrningnum-blaedir-ut/122220/)
[5. sept 2018](https://www.vb.is/frettir/theranos-leyst-upp/149483/)
[10. des 2019](https://www.vb.is/frettir/wow-medal-fallinna-risa-aratugnum/158870/)
Mér fannst hún aldrei almennega í sviðsljósinu fyrr en upp komst um sviksamlega framkvæmd fyrirtækis hennar. Það er ofboðslega mikið af fólki í tæknigeiranum í USA sem lofar gulli og grænum skógum, hún stóð aldrei neitt sérstaklega mikið upp úr.
En sagan hennar er engu að síður frábær. Hún var alveg skömmustulaus í þessu. Hún lofaði ótrúlegustu hlutum. Eftir á að hyggja er ég hissa að hafa ekki lesið fleirri fréttir af henni fyrr en spilaborgin hrundi.