
Er ég sá eini sem lýst ekkert á þetta?
https://www.visir.is/g/20242529295d/vilja-leggja-nidur-ruv-ohf.
“Lagt er til að beinir ríkisstyrkir til einkarekinna fjölmiðla verði felldir niður. Á móti njóti sjálfstæðir fjölmiðlar skattaívilnana sem eru samræmdar og gegnsæjar. Annars vegar með undanþágu frá greiðslu tryggingagjalds upp að vissu marki og hins vegar með því að fella niður virðisaukaskatt af áskriftum innlendra fjölmiðla; prentmiðlum, netmiðlum og ljósvakamiðlum.”
Er það ekki bara cool og diplo leið til þess að segja að þeir sem hafa fjármagn til þess að reka fréttastofu geti alfarið ráðið umfjölluninni í samfélaginu?
Kallið mig bara galinn er það er ekkert til í þessu hjá mér. Vitrari einstaklingar ELI5-ið commentin.
by glatadurgrutur
7 comments
Þetta væri það besta sem hefur komið fyrir fjölmiðlaumhverfi hér og raun landið í langan tíma.
Starfsfólkið þarna virðist alltaf í persónulegri krossför gegn ákveðnum aðilum í samfélaginu og eru tilbúinn að láta hagsmuni þjóðarinnar mæta afgangi á alþjóðavettvangi ná þau sínu fram.
Þá eru þau verndarstólpar endalausrar stækkunar hins opinbera, og eru komin í vörn fyrir embættismenn og fjáraustur þeirra með okkar peninga ítrekað og oft á dag.
Síðan gera þau sig sek um hluti sem maður sér bara erlendis hjá æsifréttamiðlum ítrekað.
[https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/02/13/dilja_sakar_rikisutvarpid_um_ofagleg_vinnubrogd/](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/02/13/dilja_sakar_rikisutvarpid_um_ofagleg_vinnubrogd/)
Ég hef séð fólk fara þarna inn með góðar hugmyndir og verða heilaþvegið af vitleysunni á innan við ári. Þetta er dýrasti bergmálshellir landsins.
Óli Björn er búinn að gjamma þetta og aðrar frjálshyggjufantasíur síðan í áttunni, verður sjaldnast neitt úr því.
Varðandi beina ríkisstyrki, þá er miklu eðlilegra að allir starfi við jafnt umhverfi. Með beinum ríkisstyrkjum þá geta stjórnvöld haft veruleg áhrif á hvaða fjölmiðlar fá styrki, og verður það strax háð tilfinningum.
Það þarf að búa til umhverfi þar sem fjölmiðlar sem eru vel reknir þrífast, og það geti verið hagstætt að reka bæði litla og stóra fjölmiðla og þú þarft ekki að fara á hnjánum fyrir ríkið og biðja um styrk.
>Er það ekki bara cool og diplo leið til þess að segja að þeir sem hafa fjármagn til þess að reka fréttastofu geti alfarið ráðið umfjölluninni í samfélaginu?
Nei, myndi ekki segja það. Ég er ekki Sjalli en ég held að það sé nokkuð til í þessu frumvarpi, því í augnablikinu þá er bara nefskattur tekinn af hverjum skattgreiðanda sem rennur til RÚV, þannig að eftir því sem landsmönnum fjölgar þá vex bara og vex fjármagn inn til RÚV og umfang og verkefni þess belgjast bara út.
Finnst í raun eðlilegra að RÚV yrði bara fjármögnuð eins og hver önnur ríkisstofnun, sem er það sem þetta frumvarp gerir í rauninni, og fjármagnið myndi ekki bara autómatískt hækka með hverjum nýjum skattgreiðanda.
Það er ekkert í þessu frumvarpi um að leggja niður RÚV og að allar fréttastofur yrðu einkareknar, svo þær áhyggjur meika ekki sens. Varðandi það að breyta styrkjum til fjölmiðla úr fjárstyrkjum yfir í skattaívilnanir hef ég svo ekki mjög sterka skoðun á persónulega.
Staðan er einfaldlega sú að það eru að koma kosningar og menn eru að velja sér umræðuefni til að varpa í bergmálshellana sína.
Ef þetta væri í alvörunni eitthvað sem sjálfstæðisflokkurinn leit á sem mál sem þyrfti að vera í brennidepli hefði hann átt að gera eitthvað í því á síðastliðnum, hvað er það, 15 árum sem hann hefur verið með völd?
1. Ríkisvæðing á RÚV.
2. Meiri jöfnuður fyrir einkarekna fjölmiðla.
Þetta er það sem Heimildin/Stundin hefur verið að berjast fyrir árum saman: https://heimildin.is/grein/17371/
Reikna með að þau séu að opna nokkrar kampavínsflöskur í dag.
Þú ert ekki sá eini. Mér lýst ekkert á þetta.
Vil ekki sjá neinar skattaívilnanir, engar undanþágur gjalda, fullan virðisauka fyrir allt virðisaukaskattaskylt.
Ef fólk vill reka fjölmiðla skal það gert á eðlilegum markaðsgrundvelli líkt og allt annað.
Horfi aldrei á ríkisútvarpið né nokkuð annað í sjónvarpi en ég skoða [ruv.is](https://ruv.is) á hverjum degi. Þetta er eina fréttasíðan sem er ekki með auglýsingar né fréttir af “fræga fólkinu”.
Ég er reiðubúinn að kjósa gegn hverjum sem vill taka það frá mér. Sorrí með skattpeningana ykkar en ég er bara ekki reiðubúinn til þess að lesa [visir.is](https://visir.is), nokkurntíman.