Hef nú samt miklar áhyggjur af hinu ríku hefð íslenskra stjórnmálamanna að segja eitt og gera annað.
Koma svo Kristrún. Gefðu okkur loksins einn kjósanlegan flokk á þessu skeri.
Gerðu hann að flokk sem einkennist af fjármálalæsi; kurteisri, yfirvegaðri, og málefnalegri nálgun; raunsæi; meðalhófs-jafnaðarstefnu; aðild ríkisins þar sem það á við en ekki þar sem það á ekki við; öflugu ríkisreknu velferðarkerfi; og engum félagslegum/menningarlegum öfgum.
Flokki sem stendur vörð um þann milliveg sem við höfum þróað varðandi samstarf og samskipti við Evrópu án fullrar aðildar í Evrópusambandið og upptöku Evrunnar.
Flokki sem er ekki sundurgataður af spillingu, dónaskap, öfga-vinstri forræðis- og fórnalambshyggju, öfga markaðshyggju, eða popúlisma.
Kristnir Demókratar eða hvað sem svona pólitík heitir. Slíkur flokkur hefði mitt atkvæði til lengri tíma. Fjandinn sjálfur, ég er ekki frá því að ég myndi taka virkan þátt í slíkum flokki…
Jesús hvað ég vona að hún haldi þessari línu gegn ídealistunum í flokknum.
>Aðspurð um hvort hún væri þeirrar skoðunar að rétt hefði verið að setja hömlur á vöxt ferðaþjónustunnar hér á landi, til að draga úr fjölda innflytjenda og þar með minnka álag á innviði og slíkt, sagði Kristrún að fyrst og fremst snúist málið um eðli þeirra starfa sem búið sé að skapa fyrir erlent vinnuafl.
Vildi samt að þessi spurning hefði fengið skýrara svar. Það hefði átt að skattleggja þessa grein í drasl fyrir langalöngu.
Ætli Kristrún sé byrjuð að máta sig við Bjarna?
Við erum búin að sjá í 2 kjörtímabil + rúmlega ár af D,V og bjartri framtíð hvernig 3ggja flokka stjórn er of stór biti fyrir íslensk stjórnmál.
Það er búið að stroka út evruna á matseðlinum og núna er verið að bæta við réttinum sem Sjallar veðja á að verði vinsæll í næstu kosningum.
4 comments