Þeir sem vinna gegn aðgengi langt leiddra fíkla að hreinum efnum eiga margt á samviskunni. Nú erum við að tala um faraldur af dauðsföllum af völdum ofskömmtunar – mynda þeir sem fara með málaflokkinn enga tengingu milli þess og eigin ákvarðana?
Ópíóðafíkill sem var að fá sín lyf gegnum heilbrigðiskerfið og er svo neitað um það mun kaupa ópíóða á svörtum markaði. Þar heldur hann að hann sé að kaupa t.d. oxy en fær í stað fentanyl, carfentanyl, nitazenes eða eitt af ótal mun sterkari lyfjum í óþekktum styrk. Áhrif þessara efna eru mismunandi og því erfitt fyrir hann að meta hversu mikið á að taka. Dauðsfall af völdum ofskömmtunar er alveg fyrirsjáanleg afleiðing.
Svo ekki sé minnst á að þessi lyf eru dýr á svörtum markaði, og einhvernveginn þarf fíkillinn að borga fyrir þau. Það leiðir í mörgum tilfellum til glæpa sem koma niður á okkur hinum.
Við höfum reynt þessa refsistefnu og takmörkun aðgengis í marga áratugi núna og vandamálið versnar bara. Á hvaða tímapunkti horfum við til baka, metum árangurinn og skiptum um stefnu?
Dæmi um einstakling sem er refsað fyrir að vilja hjálpa fólki
2 comments