Jæja, hvaða umfram gögnum vill OP bíða eftir áður en ákveðið er hvort takmörkunum verði létt?
Vá hvað ég fæ slæmt vibe frá henni.
Fólk er ekki valið í ráðherrastóla af því það er með brennandi áhuga á sviði ráðherrastólsins – þetta eru allt stólavermar á svakalega góðum launum. Aðalatriðið hjá þeim er að fá stól, en ekki að fá stólinn sem það brennur fyrir og ætlar sér að vinna stórverk á meðan setu sinni stendur.
Það er okkar misskilningur ef við höldum að almennt fólk, af því allir ráðherrar eru líka bara almenningur, verði eitthvað klárari eða snjallari við það að setjast á ráðherrastól.
Þetta er fólk, bæði breyskt og brigðult eins og við hin – og þetta er ágætis dæmi um ráðherrastól sem var búinn til fyrir sætavermi sem veit ekkert um vísindalega nálgun eins og sést á orðum þeirra.
Mér finnst merkilegt hvað Þórólfs-aðdáendur sem líta á hann sem ósnertanlegan guð fatti ekki að hann er bara að pæla í sóttvörnum og engu öðru. Það eina sem hann er að hugsa um er hvernig hægt er að drepa niður þessa veiru. Hann er ekkert að hugsa um andlega heilsu fólks í kjölfar aðgerða, félagslega einangrun barna og annarra, skerta menntun barna, atvinnuleysi, fátækt, rekstarörðugleika fyrirtækja o.s.frv…. það eina sem hann hugsar um er að ná niður covid tölum. Allt hitt er svo það sem stjórnmálin þurfa að taka tillit til og hafa ekki gert nóg af að mínu mati heldur fylgt Þórólf í blindni. Núverandi tölur og gögn benda vissulega til þess að það er hægt að gefa þessum atriðum mun meira vægi heldur en gert hefur verið hingað til þegar ákvarðanir hafa verið teknar.
Sumir eru alveg staðráðnir í því að við eigum að gera sömu mistökin aftur og aftur.
> Við þurfum ekki að bíða eftir gögnum til að aflétta heldur þurfum við að hafa mjög skýr gögn til þess að viðhalda takmörkunum í lengri tíma,“ sagði Áslaug Arna í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Í sjálfu sér er þetta alveg rétt. Það getur verið vonlaust að sanna að eitthvað sé “öruggt” og oft miklu auðveldara að sýna að eitthvað sé hættulegt.
Sem dæmi, erum við með gögn sem sýna að Rússar séu *ekki* að fara að gera innrás í næstu viku? Eigum við þá að setja upp herskyldu?
Eða hugsum við “við erum ekki með gögn sem sýna mikla hættu á innrás, við ætlum ekki að setja á herskyldu”?
Spurningin er þá “erum við með gögn sem sýna fram á hættu af faraldrinum?” Svarið við því er já og því augljóst hví við erum enn með takmarkanir.
Hún er að nota gild rök en beitir þeim vitlaust í þessari umræðu. Sígild rökvilla. En gagnrýnin í þessum þræði er líka vitlaust því hún einblínir á að rökin séu vitlaus.
7 comments
Skemmtileg ríkisstjórn sem við erum með