Svo er mál með vexti að ég giftist konu utan Schengen svæðisins síðastliðið sumar og við höfum verið að plana að flytja til Íslands og mér skilst að til þess þurfi hún dvalarleyfi.

Ég hef verið að fara í gegnum [UTL.is](https://UTL.is) en þetta ferli virðist vera svakalega flókið þótt við séum gift.

Er einhver hérna inni sem hefur gengið í gegnum svipað ferli? Þ.e.a.s gifst erlendis og svo flutt með eiginkonunni til Íslands?

​

​

​

​

​

by Ok_Economy_blabla

1 comment
  1. Hringdu í útlendingastofnun í stað þess að spurja um þetta á netinu, þau hafa verið mjög hjálpsamleg þegar ég hef þurft að eiga við önnur málefni í gegnum útlendingastofnun.

    Ég skil það að spurja eitthvað spjallsvæði á netinu þegar maður getur ekki fengið hjálp annarstaðar, en í þessu tilfelli ertu að borga skatta til að halda úti hjálparlínu sem þú getur notað, nýttu þér það.

    Þau svara líka tölvupósti ef erlend símtöl eru rándýr fyrir þig, eða ef þú ert súmmer sem fær kvíðakast ef þú talar við ókunnuga í síma, en ég mæli með símalínunni þeirra.

Leave a Reply