Ég held að stór hluti af því sé að almennt séð þá eru fangelsisdómar á Íslandi styttri en við þekkjum t.d. frá Bandaríkjunum eða Bretlandi.
Sem dæmi er viðmið fyrir morð á Íslandi 16 ár, en algengt í þeim löndum sem ég nefndi að fá jafnvel 30, 40, 50 eða lífstíðar dóma fyrir slíkt brot.
Þetta yfirfærist svo á kynferðisbrot rétt eins og önnur, þar sem nauðgun hér varðar oft 2-4 ár í fangelsi, samanborið við ívið lengri dóma erlendis.
Það þarf samt að athuga að réttarkerfið ber ekki eitt og sér ábyrgð á því, þeirri ábyrgð hlýtur að vera deilt með löggjafarvaldinu.
Já þetta er fyrir neðan allar hellur og svo fá einhverjir sem smygla inn eiturlyfjum sem fólk “kýs” að neyta, það er dæmt í 10 ára fangelsi það kýs enginn að vera beittur kynferðisofbeldi. Ekki nóg með það þá eru birtar myndir af meintum alræmdum eiturlyfja smyglurum í öllum fjölmiðlum landsins. En ekki af þessum viðbjóðslega fólki sem myrðir annað fólk eða beitir því kynferðislegu ofbeldi. Ég er kominn með nóg af þessum vettlingartökum sem þessi síafbrotamenn fá hérna, þetta fólk veit alveg að það sem það gerir sé rangt og á bara fá að gjalda fyrir það.
Spyrðu sjálfan þig fyrst hver tilgangur fangelsa er.
Tilgangur fangelsa er ekki að ná fram hefndum.
Þegar hugsað er um hvort þetta sé of vægt þarf að horfa á hvort fólk sé að brjóta af sér aftur eftir að það hefur lokið fangelsis vist.
tl;dr
Þegar við erum með rannsóknir sem benda sterklega til þess að þeim mun lengur sem þú fjarlægir manneskju úr samfélaginu, þeim mun líklegra er að manneskjan komi aftur út í samfélagið með enn einbeittari brotavilja, þá er niðurstaðan sú að styttri fangelsisvist = betra fyrir samfélagið.
Á Íslandi er markmiðið að reyna að endurhæfa fólk sem lendir í grjótinu.
Augljóslega eru þetta ekki nákvæm vísindi. Við vitum ekki 100%, en vísbendingarnar virðast svara til um ~80-90%, bæði hærra og lægra eftir afbrotum og afbrotaflokkum.
Þegar fangelsisvistun er betri og miðast af betrun í stað refsingar er endurafbrotatíðni talsvert lægri en þar sem markmiðið er að refsa í stað betrunar. Mig minnir að nýlegustu rannsóknir bendi til að í betrunarfangelsum sé endurafbrotatíðni ~10-40% vs að í refsingarfangelsum sé tíðnin ~60-90%.
4 comments