Ef skammímarafmagn er svona miklu dýrara þá hlýtur N1 að krefjast þess að viðskiptavinir þeirra bindi sig til að versla við fyrirtækið í einhvern tíma svo það geti boðið þeim þessi langtímaverð.
En í skilmálum N1 fyrir rafmagn til heimila sem ég var að fletta upp er tekið fram að samningurinn er ótímabundinn og viðskiptavinum frjálst að segja þeim upp með mánaðar fyrirvara líkt og reglugerðir um slíkt kveða á um.
Af hverju er hann ekki spurður út í þetta?
Og hvað er churnið af þessum viðskiptavinum til þrautarvara? Ef 80% skipta ekkert um fyrirtæki en eru samt á þessum hærri taxta mánuðum saman þá er N1 augljóslega að maka krókinn með því að láta ekki fólk vita af ódýrari taxtanum.

Æjj já. Af því fréttir á Íslandi eru að miklu leyti bara tilkynningaþjónustur fyrir fyrirtæki og stjórnvöld. Þessi Fanndís skrifaði ekki frétt, hún skrifaði tilkynningu fyrir N1.
Stundin fjallaði um þetta fyrir rétt tæpum mánuði síðan.
> Nýtt raforkusölukerfi á Íslandi felur meðal annars í sér hugmyndina um söluaðila til þrautavara. Viðskiptavinir fara sjálfkrafa í viðskipti við það raforkufyrirtæki sem er með lægsta kynnta verðið. Íslensk orkumiðlun hefur verið með lægsta kynnta verðið hingað til en rukkar þrautavaraviðskipti sína hins vegar fyrir hærra verð. Orkustofnun á að hafa eftirlit með kerfinu um orkusala til þrautavara.
>
> [..]
>
> **Til að fá lægra verð þarf fólk að hafa samband**
>
> Í samtali við Stundina segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1, að þrautavarakúnnarnir þurfi að hafa samband við félagið til að fá lægra verð. Þrautavarakerfið byggir hins vegar á því að þetta fólk borgi alltaf lægsta mögulega verðið.
>
> [..]
>
> [mynd með frétt af áhugaverðum tölvupósti](https://stundin.is/media/uploads/images/thumbs/XV1oeTDaoaZk_730x741_h3PaWzPo.jpg)
Ég fæ rafmagn frá orkuveitunni. Það fer alltaf í gegnum sama rafdreifikerfi. Ég get ekki breytt þessu á nokurn hátt. Það er koparvír sem fer beint frá orkuverinu þar sem túrbínur snúa segli í kringum koparvír til að framleiða rafmagn og að innstungunni sem tölvan sem ég skrifa þessi orð á fær rafmagn úr.
En ég má ekki kaupa rafmagnið beint af orkuveitunni, þó að eðlisfræðilögmál þess raunveruleika sem við búum í geri það ómögulegt fyrir mig að fá rafmagn á annan hátt en beint frá orkuveitunni. Ónei. Þá er enginn frjáls markaður og enginn bisness.
Svo það þarf hóp af skúffufyrirtækjum sem gera bókstaflega ekkert sem “kaupa” rafmagnið og “endurselja” mér það svo, eins og þau geymi einhverstaðar stórann tank af rafmagni og komi með sendingu heim til mín.
Þessi fyrirtæki gera bókstaflega ekki neitt annað en að sitja á milli mín og orkuveitunnar og skafa smá gróða ofan af viðskiptum okkar. Þau geta ekki á nokkurn hátt stundað neina samkeppni eða frumkvöðlastarf, af því að það er bein tenging á milli heimilis míns og orkuverinu sem býr til rafmagnið, og þau geta ekki á nokkurn hátt haft áhrif á þetta ferli.
Það er ekki sjokkerandi að eitt þessara fyrirtækja hafi reynt að græða enn meira með því að ljúga að fólki, það er sjokkerandi að þetta stórkostlega heimskulega kerfi sé yfir höfuð til.
Ef menn hafa ekkert val og verða að vera þátttakendur í *einhverju*, eins og með tryggingar, að það séu mörkin fyrir því hvort ríkið ætti að sjá um þetta *eitthvað* alfarið í staðin fyrir eitthvað einkafyrirtæki?? Nánast allt sem við verðum að taka þátt í hefur alltaf verið höndum ríkisins fyrir utan tryggingar. Þá hefur sannast að ríkið kemur miklu betur fram við mann heldur en tryggingafélögin, enda eru einkafyrirtækin ekkert að fara koma betur fram við sína þræla frekar en ríkið. Við getum að minnsta kosti kosið okkar ríkisstjórn. Þetta er að verða frekar þreitt hvað lífið þarf að vera flókið.
Þessir viðskiptahættir eru ekkert annað en svik á grunlausum neytendum, af miklum ásetningi.
Þetta skíta fyrirtæki var með sömu almennu verðskránna á raforku núna síðastliðinn desember og þeir eru með núna samkvæmt þessari grein stundarinnar sem fjallaði um þetta mál fyrst. En taxtinn í þrautavara leiðinni var þá 7,6kr/kWh. Síðan þá hefur orkustofnun hafið rannsókn á þessu kjaftæði og á sama tíma hafa þessir glæpamenn hækkað þrautavaraleiðina upp í 11,16kr/kwh. Sem er 9kr fyrir utan VSK og 9kr. er samt hærri taxti en dýrasta verðið hjá öllum raforkusölum landsins, samkvæmt aurbjorg.is. Sama fyrirtækið og er með lægsta taxtann (ásamt Straumlind) er einnig með hærri taxta en hæðsti taxti landsins.
Svo kemur þetta gerpi bæði í vefmiðla og útvarp (sá ekki sjónvarps fréttir) og segir að þetta sé því N1 þekkir ekki “viðskiptavinina” sem koma til þeirra í gegnum þessa leið og þurfa að kaupa raforku á skammtímamarkaði á mun hærra verði til að skaffa þeim raforku.
Ókei, kannski. En það er tvennt í þessu:
Þessi nýlegu lög sem voru sett fyrir fólk sem valdi sér ekki raforkusala við flutning á milli, eða í, húsnæði og varð sett á þessa þrautavaraleið til að tryggja þeim ódýrustu raforkuna. Var það fyrirtæki valið sem hafði lægstu verðskránna á einhverju tímabili þar á undan. Þá skítur svoldið skökku við að setja þetta fólk á einhvern súper taxta, forsendur alls ferlisins eru því brostnar.
En líka fólk eins og ég. Ég skipti yfir til þeirra þegar þetta hét orka heimilanna því þetta var ódýrasti orkusalinn á markaði þá. Svo kaupi ég mér íbúð og valdi mér ekki orkusalan og fékk hvergi eina einustu tilkynningu um að gera það eins og fullyrt var í fjölmiðlum að fólk ætti að gera. Ég fæ svo reikning frá N1 og hélt bara að það væri vegna þess að ég var hjá þeim síðast. Þangað til ég fer að skoða reikninginn og sé að ég er á þessum ofur taxta. Hér fellur þessi fullyrðing Hinriks um sjálfa sig, að þeir þekki ekki þessa nýkomnir viðskiptavini. Ég var hjá þeim fyrir og var svo settur aftur til þeirra svo þeir vissu mæta vel hver mín raforkunotkun er.
Ógreiddu reikningarnir sem ég hef núna á heimabankanum frá þeim eru með báðum töxtum. Fyrst kemur venjulegi, uppgefin taxtinn, og á eindaga einum degi seinna er súper taxtinn.
Þess má til “gamans” geta að ég átti inni hjá þeim því þeir áætluðu of mikla notkun á mig í leiguíbúðinni en ákváðu að láta inneignina ekki ganga upp í nýju íbúðina fyrr en ég hafði samband við þá út af því.
Svör sem ég fékk í tölvupósti frá þeim út af ofur taxtanum voru að þetta er því ég var ekki búinn að samþykkja skilmálana þeirra. Sem er líka lygi því auðvitað þurfti ég að gera það þegar ég flutti mig yfir til þeirra í íbúðinni sem ég leigði.
En í staðinn fyrir að samþykkja skilmálana aftur við þessar hörmungar blóðsugur ákvað ég frekar að skrá mig í viðskipti við Straumlind. Óbeit mín á N1, sem var sterk fyrir, hafði bara aukist gríðarlega við þessa viðskiptahætti.
Svo þegar Hinrik segir að það var ekki ætlunin að blekkja viðskiptavini N1 þá er hann bara að ljúga, það var víst ætlunin fyrir allavega góðann hluta þessa fólks.
Ég tilkynnti þetta bæði til neytendasamtakanna og orkustofnunar með afriti af reikningunum frá þeim og tölvupóst samskiptum við N1. Svo kemur þetta í fjölmiðlum seinna í vikunni, sem betur fer.
Ég hótaði þeim þessu sem og því að reyna að segja sem flestum frá hversu mikið hörmungar glæpahyski þau eru í þeirri von um að fá frá þeim viðskipti grunlaus almennings.
Svo gott fólk. Gerið hvað þið getið til að sniðganga þetta Engeyska glæpahyski sem fyrirtækið N1 er og verður um ókomna tíð.
5 comments

– [Stundin – “Íslensk orkumiðlun hefur selt þúsundum neytenda rafmagn á gölluðum forsendum” (2021-12-22T08:30)](https://stundin.is/grein/14526/islensk-orkumidlun-hefur-fengid-taeplega-18-thusund-vidskiptavini-vegna-nyja-kerfisins/)
Þetta kerfi er allt svo galið.