
Smá pæling út frá grein sem ég las frá samtökum atvinnulífsins [https://www.visir.is/g/20222210608d/rammskakkt-hagsmunamat](https://www.visir.is/g/20222210608d/rammskakkt-hagsmunamat)
Í gegnum allan faraldurinn hefur verið talað um að aðgerðirnar bitna verst á börn. Ég er kannski orðin of skeptískur á “won’t somebody please think of the children” rökin(sérstaklega frá SA), mig langar því að spyrja foreldrana hérna hvort að þau haldi að samkomutakmarkanirnar sem hafa verið hérna séu búinn að rústa komandi kynslóð eða hvort að þessi umræða sé kominn aðeins of langt, ég er síðan ekki að spá í efnahagsleg áhrif að bitna á börn (fátækt er slæm fyrir börn en SA nennir ekki að tala um það)
Nú vill ég ekki gera lítið úr þessu og geri mér grein fyrir því sem einstæður Bubbi að ég veit ekki neitt um uppeldi barna og hvað þá á tímum covid vill bara fá smá samhengi frá öðrum en SA
6 comments
Enginn af foreldrunum sem ég þekki eða ég sjálfur hefur talað um hvað þetta fer illa í börnin þeirra.
En ég þekki ekki foreldra sem eru svo vondir að börnin séu betur sett í skóla og tómstundum heldur en heima hjá sér.
Þessi áhugi SA, Áslaugar og fleiri á að hjálpa þessum börnum mun hverfa á einum degi en það er dagurinn sem þessar sóttvarnarráðstafanir enda og vinnuaflið laust við þá truflun sem börnin þeirra eru á framleiðni þess í faraldrinum.
Sumt í þessarri umræðu fær mann til að hugsa eilítið um “won’t somebody please think of the ~~our $$~~ parents”, þeas hugsmunaaðila sem finnst það hræðileg hugmynd að tapa peningum og verða af tekjum (eigendur og atvinnurekendur).
Plús, fokking börn, hverjum er ekki sama um þau, bara moka fleirrum út! /s
Ég á fjögurra og hálfs árs barn. Eina skiptið sem þetta hafði einhver áhrif á hana var nú nýlega þegar við vorum tíu daga í einangrun með Covid smit – Enda ekki skrítið, í ljósi þess að við vorum lokuð inní blokkaríbúð í tíu daga. En jafnvel það tók minna á hana en okkur foreldrana.
Leikskólinn hefur starfað meira og minna eðlilega allan tímann nema nú rétt nýlega, nánast allt félagslíf hennar fer fram þar. Hún hefur líka leikið sér eðlilega við þau börn sem hún hittir utan skóla.
Þannig að þetta hefur ekki haft mikil áhrif á hana. Ég gæti samt trúað því að fyrir aðeins eldri krakka sem eru kannski virkari í tómstundum og félagslífi gæti þetta hafa verið aðeins erfiðara. Það fólk sem ég held að þetta hafi verið erfiðast fyrir er hins vegar unglingar sem eru að byrja í menntaskóla.
En þegar SA og önnur álíka batterí beita börnum fyrir sér til þess að fá sínu í gegn fæ ég ælubragð í munninn. Þessum samtökum er andskotans sama um börn – Það sem þau eru að pæla í er vinnuframlag foreldrana.
Þetta var fín grein (þó ósammála ég sé henni) þangað til að höfundurinn fór að bera covid saman við inflúensuna… annars eru barnamál alltaf áhrifaríkt pólítísk vopn, vona bara að sem flestir sjá í gegnum þetta.
Ég á tvo krakka á grunnskólaaldri. Miðað við hvernig staðan hefur verið í Evrópu, hafa þau varla misst af einhverju og hafa lífað nánast eðlilegt líf. Við höfum haldið upp á afmæli, vinir hafa gistað og komið oft í heimsókn (þó stundum bara bekkjarsystkini). Skólastarfið nánast óbreytt. Börn í Evrópu hafa þurft að vera með grímu allan daginn í skólanum, eða verið heima með foreldrum vinnandi að heiman í marga mánuði.
Eina tímabilið sem var leiðinlegt var 1. bylgja þar sem allt lá niður, þar með talið frístundir barna. En þetta er enginn raunverulegur skaði miðað t.d. við fólk sem komst ekki til sjúkraþjálfunnar.
Ég myndi þó giska að upplifun barns á menntaskólaaldri sé alveg önnur. Fjarkennsla, ekkert félagslíf, og allt það á því aldri sem á að vera skemmtilegast í þínu lífi.
EDIT: Síðustu 2 vikur hafa þó verið leiðinlegar, en aðallega vegna þess að vinir þeirra hafa oft lent í sóttkví/einangrun.
Börnunum er slétt sama um samkomutakmarkanir, hefur engin áhrif á þau og ég tengi ekkert stöðu barna í faraldrinum við “hagsmunamat atvinnulífsins”. Það sem hefur vissulega áhrif er brölt á skólastarfinu og það gæti dregið langvarandi dilk á eftir sér enda var menntakerfið hérna ekki upp á marga fiska fyrir faraldinn. Ég á 3 stykki börn, elsta barnið er búið að missa út mánuð af skólaárinu vegna smita í bekknum. Sumir myndu kenna sóttvarnaraðgerðum um að barnið fær minni menntun en hann á rétt á en ég er ekki einn af þeim.
Það var nefnilega alveg fyrirsjáanlegt fyrir skólaárið að einhver röskun yrði á skólastarfinu en samt hafa krakkarnir í bekknum ekki látnir gera jackshit heima í þessum vikum, líkt og skólinn hafi verið algjörlega óviðbúinn því að nemendur þyrftu mögulega að vera einhverja daga heima yfir önnina.* Og auðvitað má ekki styggja foreldra með því að láta þá sitja yfir börnunum heima, þá verður allt brjálað**. Og ekki þorir nokkur sála að hafa orð á því að þessum týndu vikum yrði bætt aftan á skólaárið, það má ekki styggja kennara og þeirra heilaga rétt á þriggja mánaða sumarfríi.
Það eru alveg til lausnir á veseninu sem tengjast börnum og faraldrinum, kerfið nennir bara ekki að taka slaginn.
* Mögulega er þetta öðruvísi í öðrum skólum en þetta á að vera eitthvað sem er ákveðið af menntamálaráðuneytinu, ekki ákvörðun skóla eða kennara.
** Bjó úti 2020, lockdown og enginn skóli í 2 mánuði, það tók skólann viku að útbúa heimanámspakka fyrir börnin. Þetta er alveg hægt