
[https://heimildin.is/grein/21156/akall-um-hjalp-fra-starfsfolki-pho-vietnam-thad-er-ekki-komid-fram-vid-okkur-eins-og-manneskjur/](https://heimildin.is/grein/21156/akall-um-hjalp-fra-starfsfolki-pho-vietnam-thad-er-ekki-komid-fram-vid-okkur-eins-og-manneskjur/)
>Bréf sem sent var á íslenskt stéttarfélag fyrir tæpu ári. Bréfið er svohljóðandi í íslenskri þýðingu en það var sent á ensku:
>
>*„Sæl öll.*
>
>*Vinsamlegast bjargið fólkinu sem er að vinna á Viet nam Restaurant keðjunni sem er í eigu Viet Nam Cuisine ehf, Viet Nam Restaurant ehf og EA17 ehf.*
>
>*Við vinnum mikið og launin eru lág, og eigandi fyrirtækisins borgaði okkur meira en 400 þúsund krónur inn á reikning en við þurftum að að taka meira en 100 þúsund krónur út í reiðufé til að borga honum til baka. Þar að auki þarf fólk sem vinnur ekki á þessum veitingastöðum samt að fara þangað til að vinna, til dæmis fólk af WokOn ehf og Vy-þrifum. Það er ólöglegt.*
>
>*Við leggjum hart að okkur, borgum okkar skatta en það er ekki komið fram við okkur eins og manneskjur.*
>
>*Vinsamlegast bregðist við sem allra fyrst.“*
​
by Technical_Fee7337
3 comments
Hver voru viðbrögð stéttafélagsins?
Hvernig vitum við hvort þetta hafi ekki einmitt verið kveikjan að rannsókninni sem leiddi til handtöku eigendanna?
Var þetta bréf kveikjan á rannsókninni, eða var þetta bréf sett í skúffu hjá einhverju fólki sem hefði átt að tilkynna það áfram og þar með komið þessu máli í farveg mikið fyrr.
Það skiptir máli – það er mjög algengt að svona “verkefni” í öðrum löndum séu búin að kaupa stóra parta af samfélagsgæslunni sem myndi annars sjá um að stöðva mansal og vinnuþrælkun. Mig langar að vita um viðbrögðin, ekki bara að bréfið hafi verið sent!