Mig langaði aðeins að tala um hann Pál Óskar, sem er jú víða þekktur tónlistarmaður á klakanum. Það væri kannski hægt að líta á þetta eins og opið bréf sem vonandi einhverjir tengja við.

Ég er þrítugur karlmaður sem er ekki frásögu færandi, en þegar Palli var sem virkastur var ég á táningsárum. Á þessum árum var alveg hræðileg hommafælni í manni, sem stafaði af fáfræði og áhríf frá (mörgum) fullorðnum. Nú veit ég ekki alveg hvort það hafi verið almennt álít unglingsstráka, eða bara í mínu umhverfi. En það mátti aldrei vera “faggi”, sem þýddi að þú mættir ekki hlusta á ákveðna aðila eða fíla ákveðnar myndir. Að sjálfsögðu þá þroskaðist ég eins og vonandi flestir, það var í raun ekkert eitt ákveðið augnablik þar sem þetta breyttist, en félagslega pressan dvínaði eftir grunnskóla og maður kynntist allskonar fólki.

Á einhverjum tímapunkti þá byrjaði Palli hægt og rólega að komast inn á playlistann hjá mér, en ég vissi í raun lítið um hann. Fyrir nokkrum dögum síðan rakst ég á frábært hlaðvarp sem heitir Tveir Fellar, tveir ungir strákar sem tala við þekkta íslendinga úr mismunandi geira. Bara til að skjóta því inn á milli, þá mæli ég með því að hlusta á þessa þætti, þeir eru frábærir. En allavegana, þar rakst ég á viðtal við Palla í síðasta mánuð, tveggja tíma viðtal þar sem Palli fer svolítið djúpt inn í lífsreynsluna sína og hvernig hann varð að þeim manni sem hann er í dag. Ég sat agndofa við skjáinn og fannst þetta mjög áhugavert, en fann líka skömm yfir því hvernig ég leit á hann á unglingsárunum.

Þú átt ekkert skilið nema hrós og virðingu frá mér, og ég biðst afsökunar til þín Palli, þó þú munir aldrei sjá þetta.

Algjör þjóðargersemi, við erum heppin að hafa svona snillinga. Hann er með tónleika seinna í þessum mánuð sem mig dauðlangaði á, en ég bý erlendis eins og er. Mæti næst 🙂

[Ef einhver vill fá link á viðtalinu við hann](https://youtu.be/XKgRS1KZku4)

by Warm_Acadia6100

2 comments
  1. Ég tek undir það. Hann er þjóðargersemi.

    Ég tel að fáir hafi gert jafn mikið fyrir málstaðinn. Hann beytti aldrei neinum þrumuræðum um hvernig samfélagið ætti að vera. Hann var einfaldlega ávallt rosalega fínn gaur.

    Edit: eða eins og skáldið sagði: “Ég, er eins og ég er, því hvernig á ég, að vera eitthvað annað.”

  2. Palli er flottastur og hefur verið það í áratugi.

    Man að þegar ég var í grunnskóla, að sama hvaða músík þú hlustaðir á það fíluðu ALLIR plötuna Seif með Palla.

Leave a Reply