Finnst þetta nokkuð áhugaverður pistill þegar borið er saman eignarhlutfall ríkisins á bönkunum á við önnur lönd.
Þó tel ég ekki sniðugt að selja Landsvirkjun en er spenntur fyrir þeirri hugmynd sem ég hef heyrt með að Lansdvirkjun kaupi orkuveituna og losar þá Reykjavík um miklar skuldir.

Þau fyrirtæki sem ég tel gott að selja væri Íslandsbanki, RARIK, ÁTVR, Íslandspóstur, sorpa og jafnvel Harpan þó ég tel gott að ríkið eigi það hús.

Taka til í eignarhlutum fyrirtækja á orkusviði og sameina meira þar en ekki selja til einka aðila.

Hver er ykkar skoðun á eignarhaldi ríkisins á fyrirtækjum? Áhugavert að heyra frá þeim sem eru á móti allri sölu og frá þeim sem vilja selja sem flest.

by shortdonjohn

1 comment
  1. „Með því að losa um eignarhald á fyrirtækjum í eigu hins opinbera mætti auka samkeppni samhliða því að laða að fjárfestingu, bæði frá innlendum aðilum og erlendum.“

    Sum þessara fyrirtækja eru með náttúrulega einokun og önnur eru í einokunarstöðu. Viðskiptablaðið og hægrimenn almennt slengja fram hugtökum eins og samkeppni hugsunarlaust til að haka í hugmyndafræðilega reiti. Það eina sem skiptir máli er að valdir gæðingar komist yfir eignirnar.

Leave a Reply