Stórnotendur ættu að taka sveifluna á sig!

8 comments
  1. Algerlega. Það eru stórnotendurnir, ekki íslensk heimili, sem eru að valda þessum raforkuskorti. Þeir sem valda þessu eiga að taka þetta á sig.

    Landsvirkjun er fyrirtæki í eigu landsmanna, s´érstaklega stofnað til að gefa fólkinu í landinu ódýra raforku.

  2. Já ég er sammála þér. Hinsvegar hafa stórnotendur líka skapað möguleikan á því raforkuöryggi sem við lifum við. Um að gera að spyrja kynslóðina á undan okkur hvernig það var þegar það þurfti að skammta rafmagn á jólunum til dæmis fyrir tíma búrfellsvirkjunar sem ríó tinto hefur svo gott sem borgað upp á eigin spítur

  3. Stórnotendur taka margoft á sig sveiflur. Ef lítið vatn er í uppistöðulónum er takmarkað þá orku sem t.d Norðurál fær og hafa þeir margoft þurft að takmarka framleiðslu vegna þess. Norðurál nota um 25% af heildarorku landsins.
    Hinsvegar er þetta pjúra vandamál sem orkuframleiðendur vissu af. Ef þeir hefðu t.d fengið heimild fyrir vindmyllugarð ofan við Búrfell þá væri hægt að nýta þær myllur til að viðhalda þeim lónum sem eru þar. Þessu var hafnað vegna sjónmengunar! Þetta er eyðimörk og því jarðvegsrask ekkert, ásamt því að þetta land er kjaftfullt af lónum.
    Sama með Vestfirðina, að byggja glænýja sorpbrennslu á Vestfjörðum myndi ekki eingöngu útrýma orkuskort þeirra heldur líka myndum við hætta að senda plast erlendis í brennslu og bæta okkar kolefnisspor svo að um munar. Ný sorpbrennsla er ótrúlega fullkomin og mengar ekki neitt. Skárra en að virkja myndi ég segja.

  4. Allt þetta umtal um brostnar virðiskeðjur og verðbólgu í heiminum er notað til þess að níðast á neytendum. Það er verðsamráð og verðhækkanir í gangi í ansi mörgum geirum sem eru talsvert umfram auknum framleiðslukostnaði.

  5. Viltu að rikið niðurgreiði rafmagn til heimila?

    Eiga heimili ekki að fá ódýrara rafmagn þegar það lækkar í verði?

  6. Það er margs að gæta við verðlagningu rafmagns.

    Eigum við að vera að selja Aflandafélögum (Glæpafélögum) rafmagn.
    Ég spyr vegna þess að þau félög **sem vilja ekki** borga skatta hér ættu að vera heima.

    Landsnet er ónýtt fyrirtæki, þó opinbert sé, vegna takmörkunar á leifum til línilagna.
    Gæti sagt svo miklu meira en það eru að koma fréttir.

Leave a Reply