Heimildin – Ekkert samband á milli fjölda innflytjenda og glæpa

Bara henda þessu hérna inn til að geta vísað í þetta næst þegar einhver fullyrðir að innflytjendur og flóttamenn sem komi hingað séu ekkert nema glæpamenn og að glæpir muni aukast í takt við fjölda flóttamanna.

by Stutturdreki

7 comments
  1. Hvernig í fjandanum eiga rasistar að hræða eldri kynslóðina ef fólk notar tölfræði?

  2. Ég er týpan sem er aldrei að fara lesa þetta dót frá Heimildinni og líkurnar á að það sé minnst á eitt ákveðið í þessari grein eru afskaplega litlar. Er eitthvað samband milli fjölgunar flóttafólks og alvarlegri glæpa?

  3. Ég er hlynntur því að leyfa sem flestum að flytja hingað og tala óforskammað fyrir því. En þetta er ákveðið strawman.

    > Það er ekki þannig að þau lönd í heiminum þar sem eru hlutfallslega flestir innflytjendur eða hlutfallslega flestir hælisleitendur – að þar séu flestir glæpir. Það er bara ekkert samband þarna á milli,“

    Rétti hluturinn til að mæla yrði hlutfall afbrota hjá innflytjendum miðað við hlutfall innflytjenda – leiðrétt m.t.t. aldurs og kyns.

    Ég þekki ekki tölurnar á Íslandi, en ég veit að í BNA eru innflytjendur ólíklegri til að fremja glæpi (M.a.s. áður en leiðrétt er mtt aldurs og kyns).

    E: Það er augljós breyta sem hefur líka áhrif á bæði fjölda innflytjenda og fjölda ofbeldisbrota er efnahagur. Ríkara þjóðfélag er (að öllu öðru jöfnu) öruggara þjóðfélag og líka eftirsóknarverðara fyrir innflytjendur.

  4. Eg er að sinna samfelagsþjonustu og það eru 9 aðrir með mer, eg er eini sem tala islensku

  5. Stærtstu glæpirnir á Íslandi sem skaða sem flesta eru hvítflibbaglæpirnir framdir af þeim, og vinum þeirra sem, eru alltaf að benda öðru fólki á að hræðast smáglæpi þeirra sem líta öðruvísi út.

    Enginn innflytjandi hefur valdið stærsta bankahruni mannkynssögunnar – en sumt fólk sem kom nálægt þessu téða hruni, og einhvernveginn virðist hafa grætt á því á meðan við hin töpuðum fjármagni og tækifærum, er líka fólkið sem bæði stór-eykur fjölda innflytjenda og gefur síðan umræðunni um alla þessa glæpi sem innflytjendur stunda (en hafa aldrei ollið stærsta bankahruni mankynssögunnar) byr undir báða vængi.

    Það versta við þetta allt er að fólkið sem lætur glepjast er oftar en ekki að horfa á raunveruleg vandamál í samfélaginu – en þessir aðilar sem segja það sem þau vilja heyra varðandi þau vandamál munu aldrei laga þau vandamál heldur bara segja það sem þau vilja heyra aftur og aftur á meðan þau hugsanlega auka vandamálið svo þau geta sagt það aðeins meira og hærra. Svo vandamálin lagast aldrei heldur aukast hugsanlega bara, hatrið bara eykst og eykst, og fólkið sem býr til vandamálið sem það ætlar aldrei að laga fær öll verðlaunin.

    Bömmer.

  6. Væri ekki sniðugt að banna hlekki á greinar sem faldnar eru bakvið greiðsluvegg nema viðkomandi afriti allan textann?

Leave a Reply