
En samt er það ekki nóg og núna vill hann fá meiri fjármuni frá ríkinu til að auglýsa ísland.
Held að fólk hafi almennt minni peninga milli handana vegna verðbólgu og húsnæðisskorti og því sé fólk sparsamara. En í alvöru talað má ekki alveg slaka á túristavæðingu á íslandi? Hversu margar inspired by Iceland auglýsingar þurfum við?
Er ég eini sem finnst að Samtök ferðaþjónustunnar séu sí vælandi í fréttunum? Þarf ég að hringja í Jens?
Við viljum meira meira meira! Alveg eins og Britney söng forðum daga
Sorrý fyrir rantið ég er bara eitthvað tæpur í dag 😌 takk fyrir að hlusta🙏
by BodyCode
3 comments
Ferðamannaiðnaðurinn er einhver mest verðbólguhvetjandi iðnaður sem til er. Það er algjört brjálæði að það sé ekki verið að draga þetta í land með einhversskonar skattlagningu.
Annars vona ég innilega að þessi spá um samdrátt rætist.
Hvað gerði þjóðin áður en ferðaþjónustan sprakk út í kringum 2010? Eðlilegt væri að líta á ferðamenn eins og síldina sem allt í einu hvarf og ævintýrinu lauk skyndilega.
Ferðamönnum má alveg fækka og mikilvægi greinarinnar má dragast saman. Það er auðvitað svo gott sem enginn með slíka fyrirhyggju að reikna með slíku.
Held að ferðamannaiðnaðurinn verði að fara að átta sig á því að gullgrafaraæðismódelið gengur ekki nema X lengi.
Ef að þau vilja stuðning frá Ríkinu þurfa þau að greiða hærri en 11% VSK eða finna peningana hjá sér sjálf, nógu mikið eyða þau í þennan lobbýista sem að vill jafnvel að öryggis fólks sé sett neðar en hagsmunir fyrirtækis.
Held að þau þurfi einfaldlega að fara í naflaskoðun með verðlag, og í sínar eigin markaðsherferðir í stað þess að fá afslátt af vsk og að ríkið borgi allt fyrir þau.