Hvað er að fólki sem starfar hjá þessum "leggja/geyma" bíla þjónustum. Þarf fólk að geta "læst" bílunum sínum í 90km/h og 50km total.
https://www.visir.is/g/20242549863d/starfs-madur-base-parking-a-170-a-bil-vid-skipta-vinar

Ekki séns að maður nýti sér þetta.

by Upset-Swimming-43

4 comments
  1. Sorglegt því þetta er snilldarþjónusta sem þau bjóða upp á

  2. Ætli starfsmaðurinn sem keyrði sé nokkuð farinn að svitna þar sem myndbandið er komið í umferð. Er ekki beinast hjá löggiman að renna í hlað og klippa hjá honum ökuskýrtenið.

  3. # [2024-03-29](https://www.visir.is/g/20242549863d/starfsmadur-base-parking-a-170-a-bil-vidskiptavinar) Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar

    >Karlmaður uppgötvaði að bíl hans var ekið á allt að 170 km hraða af Base Parking þjónustunni á meðan hann var í fríi. Viðskiptavinir hafa áður kvartað yfir óvönduðum vinnubrögðum fyrirtækisins, þar á meðal að hafa týnt lyklum. Einnig eru áhyggjur af brotum á réttindum starfsmanna og launagreiðslum undir borðið.

    # [2024-03-16](https://www.visir.is/g/20242543724d/hadegisfrettir-bylgjunnar) Hádegisfréttir Bylgjunnar

    >Í hádegisfréttum Bylgjunnar er rætt við formann Neytendasamtakanna sem segir ótrúlegt hversu mörg mál tengd fyrirtækinu Base Parking rati á borð samtakanna. Fyrirtæki verði að vanda til verka þegar neytendur treysti þeim fyrir eigum sínum, sem í þessum tilvikum eru oft á tíðum mjög dýrar bifreiðar.

    # [2024-03-16](https://www.visir.is/g/20242543706d/mal-tengd-base-parking-a-bordi-neytendasamtakanna-i-hverjum-manudi) Mál tengd Base Parking á borði Neytendasamtakanna í hverjum mánuði

    >Formaður Neytendasamtakanna, Breki Karlsson, lýsir yfir áhyggjum vegna fjölda mála tengdum Base Parking, sérstaklega á Keflavíkurflugvelli, þar sem neytendur hafa upplifað seinkanir, týnda lykla, tjón á bifreiðum og fleira. Um það bil eitt mál á mánuði berst samtökunum tengt þessu fyrirtæki. Breki hvetur fólk til að hafa samband við Neytendasamtökin ef þau verða fyrir tjóni.

    # [2024-03-16](https://www.visir.is/g/20242543511d/ofagrar-sogur-af-vidskiptum-vid-base-parking) Ófagrar sögur af viðskiptum við Base Parking

    >Fréttir af óánægju viðskiptavina með Base Parking hafa borist eftir umfjöllun Vísis, þar sem fjallað er um týnda lykla, tjónaða bíla og slæma þjónustu. Fyrirtækið, sem býður upp á bílageymsluþjónustu fyrir ferðalanga, hefur verið gagnrýnt fyrir að nota bíla viðskiptavina án leyfis og veita ekki endurgreiðslur. Ómar Þröstur Hjaltason, eigandi Base Parking, segist leggja áherslu á framúrskarandi þjónustu og hefur tekið í notkun nýtt kerfi til að bæta endurgreiðsluferlið.

    # [2024-03-15](https://www.visir.is/g/20242543577d/hafa-haft-ahyggjur-af-starfsemi-base-parking-i-morg-ar) Hafa haft áhyggjur af starfsemi Base Parking í mörg ár

    >Formaður verkalýðsfélags Keflavíkur lýsir áhyggjum yfir starfsemi Base Parking á Keflavíkurflugvelli, þar sem grunur er um brot á réttindum starfsmanna og launagreiðslur undir borðið. Viðskiptavinir hafa einnig lýst yfir slæmri reynslu, þar á meðal týndum bílum og skemmdum. Eigandi Base Parking viðurkennir að vandamál hafi komið upp en segir þau vera fá og að unnið sé að úrlausn þeirra.

    # [2024-03-15](https://www.visir.is/g/20242543567d/kvoldfrettir-stodvar-2) Kvöldfréttir Stöðvar 2

    > Fjölmargir viðskiptavinir bílastæðaþjónustunnar Base Parking á Keflavíkurflugvelli lýsa slæmri reynslu sinni af viðskiptum við fyrirtækið. Formaður verkalýðsfélags Keflavíkur segir áhyggjur hafa verið uppi um starfsemi þess í fjöldamörg ár. Við förum á vettvang á Keflavíkurflugvelli í fréttatímanum.

    # [2024-03-14](https://www.visir.is/g/20242542609d/-we-lost-your-keys-) „We lost your keys“

    >James Weston upplifir slæma þjónustu frá Base Parking, fyrirtæki sem sér um bílastæði fyrir flugfarþega, þar sem lyklar hans týnast og engin aðstoð er veitt. Eftir heimkomu uppgötvar annar viðskiptavinur, Björn Júlíusson, að bíl hans hefur verið notaður og ekið um 300 kílómetra án hans vitundar. Fyrirtækið reynir að þagga niður neikvæða umræðu á samfélagsmiðlum og loforð um endurgreiðslu eru ekki efnd.

    # [2023-12-21](https://heimildin.is/grein/20087/verk/) Verkalýðsfélagið í ítrekuðu stappi við bílastæðafyrirtæki í Reykjanesbæ

    >Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, gagnrýnir Base Parking fyrir að borga ekki laun samkvæmt kjarasamningum og skila ekki gjöldum í lífeyrissjóð og til stéttarfélaga. Verkalýðsfélagið er með útistandandi mál fyrir fjóra starfsmenn gegn fyrirtækinu. Málin snúa að bæði íslenskum ríkisborgurum og erlendum starfsmönnum

    # [2019-12-06](https://vefsafn.is/is/20200107161419/https://www.frettabladid.is/frettir/vidskiptavinir-base-parking-opna-sig-get-stadfest-thad-ad-omar-lygur/) Viðskiptavinir Base Parking opna sig: „Get staðfest það að Ómar lýgur“

    >Viðskiptavinir Base Parking kvarta yfir slæmri meðferð á bílum sínum, þar á meðal skemmdum og óeðlilegum lyktum. Fyrirtækið og eigandi þess, Ómar Þröstur Hjaltason, hafna öllum ásökunum og halda því fram að starfsemi þeirra sé örugg og lögleg. Viðskiptavinir deila reynslusögum sínum af tjóni og vanrækslu, en fyrirtækið virðist ekki bregðast við kvörtunum á fullnægjandi hátt.

    >„Þeir mættu á bíl frá mér eitt sinn á loftlausu dekki. Keyrðu á felgunni alla leið frá geymslusvæðinu. Strákurinn sagðist ekkert hafa tékkað á neinu og fór bara í burtu.“

    > „Þegar hún fékk bílinn til baka fór hún að furða sig á því hvað það væri mikil fiskilykt í bílnum. Hún ákvað að þrífa bílinn að innan og þá tók hún eftir því að afturbekkurinn í bílnum var allur skítugur. Það var drulla á gólfmottunum og hann var allur í sandi og hurðarspjöldin voru öll rispuð. Þetta var alveg nýr bíll sem hún var nýlega búin að kaupa. Hún var sú eina sem hafði verið í bílnum og sú eina sem hafði keyrt hann,“ bætir Jóhann við.

    >Móðir Jóhanns greindi fjölskyldunni frá atvikinu í matarboði hjá ættingja og var frænka þeirra sem vann á þeim tíma hjá Base Parking viðstödd.

    >„Þá segir hún að þetta komi henni ekkert á óvart af því að strákarnir þarna gengu um bílana eins og þeir ættu þá. Færu á þeim í mat og voru oft að troða sér allt of margir í bílana. Þetta er Toyota Aygo og það eru ekki allir sem átta sig á því að þetta er bara fjögurra manna bíll, þannig að ef þeir eru fimm að troða sér í bílinn þá er mjög auðvelt að rispa hurðarspjöldin. Ástæðan fyrir því að hún ákvað að nýta sér þessa þjónustu var vegna þess hvað bíllinn var nýr og hún vildi ekki að hann væri ekki í troðningi á milli annara bíla uppi á velli. Svo fékk hún bílinn svona til baka,“ segir Jóhann sem er ekki par sáttur við fyrirtækið.

    # [2019-12-04](https://greynir.is/page?id=2b7c0cc2-16af-11ea-9937-04014c605401) Glæfraakstur á bílum viðskiptavina: „Það var bara verið að steikja bílinn“

    >Base Parking við Keflavíkurflugvöll er sakað um ólöglega starfshætti, þar sem starfsmenn eru sagðir hafa notað bíla viðskiptavina á óviðeigandi hátt. Fyrrverandi starfsmaður og myndbönd staðfesta að bílum hafi verið ekið glannalega og jafnvel valdið tjóni. Fyrirtækið og eigendur þess, Ómar Þrastar Hjaltason og Njáll Skarphéðinsson, neita öllum ásökunum og halda fram að öryggisráðstafanir séu viðhafðar.

    > Kamil tekur fram að dæmi séu um að bílar hafi eyðilagst í vörslu fyrirtækisins, og nefnir dæmi um nýlegan BMW-jeppa. „Þeir voru bara að leika sér á bílnum,. Þetta var BMW m 5 sem er 500 hestöfl. Þeir voru að spóla, og það var bara verið að steikja bílinn. Það fór í honum kúplingin og fleira.“

    # [2019-01-31](https://www.visir.is/g/2019190139764/bilastaedathjonusta-sektud-eftir-kvartanir-isavia) Bílastæðaþjónusta sektuð eftir kvartanir Isavia

    >Neytendastofa hefur lagt 250 þúsund króna sekt á Base Capital ehf. fyrir villandi markaðssetningu við Leifsstöð. Isavia kvartaði yfir auglýsingum sem fullyrtu að Base Capital byði upp á ódýrustu bílastæðin, sem reyndust vera ósannar. Fyrirtækinu hefur verið bannað að birta slíkar auglýsingar og þarf að gera breytingar á markaðsefni sínu.

  4. Það að fólki dettur í hug að afhenda svona fávitum bíllinn sinn. Maður myndi halda að svona fyrirtæki myndi automatískt fara á hausinn eftir allt þetta bull en það eru greinilega nóg til af bjánum.

Leave a Reply