
Fátt meira þreytandi en símasölufólk að betla fyrir einhverju sem maður hefur aldrei heirt um áður. Þetta virðist koma í "hollum" hjá mér allavega, en maður hafði trú á því að þetta merki hefði einhverja merkingu en samkvæmt þessu þá er það liðin tíð.
by Upset-Swimming-43
6 comments
>Við umsókn og samningsgerð um lífeyrissparnað við Allianz hafi maðurinn, með undirritun sinni, veitt félaginu heimild til að setja almennar umsóknar-, samnings- og bótaupplýsingar í sameiginlegt samskipta- og gagnavinnslukerfi Allianz samsteypunnar.
>Jafnframt hafi hann samþykkt að upplýsingarnar mætti vista hjá miðlara eða tryggingarsala og koma á framfæri við miðlara og önnur þýsk félög Allianz samsteypunnar, sem hafi með tryggingarmál hans að gera, að svo miklu leyti sem það þjóni eðlilegri framkvæmd samnings hans eða snerti reglulega umönnun viðskiptavina.
>Einnig byggði Allianz á Íslandi á því að lögmætir hagsmunir, til nýtingar grunnupplýsinga í viðskiptamannagrunni sínum til beinnar markaðssetningar, heimili þessa vinnslu persónuupplýsinga.
það er ekki beint í þágu Allianz að fréttamiðlir fjalli um að þeir virði óskir skjólstæðinga sinna að vettugi
þetta gæti verið leyst með tékkboxi við undirritun samþykkisins: ‘venjulega hringjum við á x ára fresti til að tryggja að tryggingin sé í samræmi við aðstæður þínar, enda erum við tryggingafyrirtæki. hakaðu hér ef þú vilt afþakka slíka ráðgjöf, sem felur venjulega í sér símtal á x ára fresti’
þetta er ekki eins og Vodafone að bjóða manni í 2ja mánaða trial í nýjustu útfærslu þeirra af farsímadíl, ef ég skil svör Allianz rétt? meira tengt því að það sé algengt að fólk verði vantryggt eftir ákveðinn fjölda ára hjá þeim því það hirðir ekki sjálft um að uppfæra tryggingar í samræmi við nýjar aðstæður? og því eðlilegur hluti af fyrirtæki sem vill tryggja viðskiptavini sína að tryggja líka að sjálf tryggingin sé í lagi.
Ég vista þessi númer sem “ekki svara”.
Ekki alveg það sem dómur persónuverndar segir. Það sem dómurinn segir er að bannmerking á [ja.is](https://ja.is) skiptir engu ef viðkomandi hefur gefið upplýst samþykki fyrir því að það megi hafa samband við hann.
Persónuvernd getur étið rassgat, á að kæra svona evrópu megin undie GDPR
Ég veit að þetta er ekki vinsælt komment en þetta er gott dæmi um að Allianz sé skíta fyrirtæki. Ég veit að það hljómar frábærlega að spara í evrum og vera tryggður af þýska ríkinu en í guðanna bænum skoðið kostnað og ávöxtun vs aðra sjóði. Flott að spara sjálfur í evrum/dollara
Persónuverndarstofa setur ekki lögin um þetta. Þeir hérna sem kenna Persónuvernd um að gera fyrirtækjum þetta kleyft eru að gelta á vitlaust tré ef maður má nota erlent málstæki.
Sem dæmi þá er svoldið skrýtið að halda því fram að [ja.is](http://ja.is) setji reglurnar um hverja má hringja í og hvern má ekki hringja í. Ja er ekki opinbert fyrirtæki, þó svo það sé afsprengi hins opinbera til að byrja með ef ég man rétt. [Ja.is](http://Ja.is) hefur ekkert umboð til að gera slíkt frekar en ég hef umboð til að banna mönnum að tala við mig í strætó ef þeir heita Sveinn Andri.
Ef fólk vill lögmæta skráningu þeirra sem ekki má hringja í til að selja vörur og þjónustu þá þyrftu lög um það að vera gerð af Alþingi sem Persónuvernd myndi fara eftir og dæma útfrá. Svo virðist sem það hafi verið farið eftir lögum í þessu tilviki, eða allavega lögin hafi ekki hindrað aðgerðir fyrirtækisins til að koma upplýsingum um manninn áfram. Svo það þarf sterkari lög um slíka viðskiptasiði ef það á að stoppa slíka hegðun.