

Góðan daginn tölvuleikjaspilarar
Ég er að leita að einhverju millistykki til að tengja ps2 í hdmi á LG flatskjá svo ég þurfi ekki að halda í litla gamla sjonvarpið sem er með RCA (gult, rautt. hvítt) inputti
Ég hef séð þetta Nedis breytibox í Elko en veit ekkert hvernig gæðin verða í gegnum þetta. Og var líka að spá hvort það sé hægt að kaupa snúru sem fer beint úr av multi out inputtinu (sama og RCA snúran fer í) í hdmi?
by Impossible_Duck_9878
3 comments
Vil bæta við: ég sé það stendur full HD á þessu breytiboxi en einhverjir á netinu vilja meina að kaupa frekar stykki frá retrotink og einhverjum öðrum sem sérstaklega gera millistykki sem tengja gamlar tölvur í ný sjónvörp
Ég hef notað svipað box til þess að tengja PS2-ið mitt við sjónvarpið. Virkar vel, gæðin í PS2 eru hvort sem er svo léleg að maður tekur ekki eftir neinu verra.
Þú færð aldrei sérlega há gæði úr RCA/composite á flatskjá svo það væri langbest að losna við þann hlekk úr keðjunni. Tengið í tölvunni sjálfri styður bæði RGB og component og væri betra að breyta öðru þeirra í HDMI frekar en composite.
RetroGamingCables hafa haft [þetta RGB > HDMI millistykki](https://www.retrogamingcables.co.uk/sony-av-accessories/PlayStation-2-3-RGB-SCART-CABLES/SONY-PLAYSTATION-HD-RAD2X-CABLE) í sölu en það er víst ekki til á lager. Þú gætir prófað að senda þeim fyrirspurn eða reynt að finna annars sataðr.