Hún fór svo í gær og bað Guðna, haldhafa embættisins sem hún ætlar að bjóða sig fram í, um lausn úr forsætisráðherraembættinu. Þetta þarf hún að gera skv. stjórnarskrá og hann stjórnar því hvort hún fái lausn eða ekki. Hann segir við hana að það sé ekki búið að finna annan forsætisráðherra, ergo hann getur ekki veitt henni lausn án þess að það verði stjórnskipuleg kreppa í landinu því þá er enginn til að framkvæma vald forseta, það er að forseti verður þá tæknilega séð forsætisráðherra.
Svo hún virðist hafa tæmt skrifstofuna sína vegna þess að hún þekkir ekki stjórnarskrána eða hlutverk embættisins sem hún sækist eftir. Það gæti allt eins verið tvær vikur í að annar forsætisráðherra verður valinn en skrifstofa forsætisráðherra verður þangað til í höndunum á forsetaframbjóðanda í tómri skrifstofu.
Var hún ekki bara að tæma skrifstofuna af perónulegum munum?
5 comments
Frétt frá gærdeginum, fannst skrýtið að hún rataði ekki hingað inn.
Hvað finnst fólki um þetta?
Eðlilegt og eftir bókinni. Það verður að sitja ríkisstjórn í landinu. Svona virkar kerfið okkar.
En ekki hvað? “Purge” þangað til stjórnleysinu líkur?
Förum aðeins yfir þetta.
Í fyrradag fór Katrín að ganga frá [skrifstofunni](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/04/06/katrin_gengur_fra_skrifstofunni/) og birti myndir af því á Instagram.