Það er staðreynd að Bónus lagaði mikið verðlag á Íslandi. Er það ekki samt þannig að samkeppni og fákeppni er ekki til staðar lengur svo þeir ráða verðinu ásamt Krónunni. Bara pæling á þessum mánudegi.

by Brynjar-Nielsen

3 comments
  1. Bónus setur verðið sem að er grunnurinn að því sem að hinar keðjurnar elta.

    Hef heyrt frá fólki innan hinna keðjanna að Bónus sé oft að selja hluti á verðinu sem að birgjar bjóða þeim. Og að Bónus virðist alltaf hafa svigrúm til að lækka sig þegar aðrir fá betra verð loksins þannig að það sé tilgangslaust að elta verðið þeirra og vera að reyna að keppa.

    Þannig að já, ég held að Bónus hafi talsvert um að segja hvernig matvælaverð er hérlendis. Og skilar alltaf milljarða hagnaði þrátt fyrir að vera með “lágt” vöruverð. Og að þessi keðja hafi verulegt tak á birgjum og verðlagningu þeirra til annarra.

  2. Bónus er bara í samráði með öllum hinum. Voðaleg einföldun að klína þetta allt á eitt fyrirtæki.

  3. Burtséð frá því, þá fer ég persónulega aldrei í Bónus þó verðið sé betra en annars staðar. Vöruúrvalið hjá þeim er lélegur brandari, og virðist verða verra með hverjum mánuðinum sem líður.

    Verðið er langt frá því að vera eina sem skiptir máli.

Leave a Reply