
Ég þekki til þessarar konu þar sem ég fór í Dalvíkurskóla og verð að segja að mér finnst þetta fáránlegt. En þar sem þetta er mjög lítið samfélag þá þori ég ekki að tjá mig um þetta neins annarstaðar því hér get ég komið fram undir nafnleynd. Er alveg met hrædd við hana og fólkið í kringum hana.
Það eru mörg dæmi um ógnandi eða óviðeigandi hegðun frá henni, en ég held að þetta sé fyrst skiptið sem hún beitir líkamlegu ofbeldi. Þetta er rígfullorðin kona sem lemur barn og mér gæti ekki verið meira sama þó svo að barnið lamdi hana fyrst.
Það er augljóst að löðrungur frá krakka er aldrei að fara að vera jafn kraftmikill og frá fullorðnum einstakling. Þessi kona hefur líka alltaf verið í mjög góðu líkamlegu formi og er það örugglega enþá, hef samt ekki séð hana lengi þannig að ég ætla ekki að fullyrða neitt um það.
Þessi kona á ekki að vera í kennarastarfi og það að hún fái bætur fyrir að hafa beitt ofbeldi í starfi er svo steikt. Það ætti að vera búið að segja henni upp fyrir löngu.
by lmoutofldeas
1 comment
Ef þú lest fréttina snýst málið um ólöglega uppsökn og það er farið vel í ástæðurnar í fréttinni og ekki hægt að sjá annað enn þetta sé hárréttur dómur. Mögulega er eina sem hægt er að setja útá þetta að bæturnar séu alltof lágar.
Aumingja væðingin í uppeldi barna er orðin algjör og virðast margir foreldrar ætlast til þess að börn fái að komast upp með hvaða ofbeldi sem þeim sýnist. Það er engan veginn hægt að stunda skilvirkt skólastarf ef kennarar mega ekki beita því valdi sem þarf til að stoppa ofbeldi innan skólans og gott að sjá að dómarar virðast skilja það þó margir aðrir virðist ekki hafa þrótt til.