Djöfull eru þeir sem hafa komið inn fyrir þá sem eru í einangrun að standa sig vel samt
Króatía er Akkílesarhæll íslenskra hópíþrótta
Þessi leikur sýndi vel hversu mikið reynsla skiptir máli. Nýju leikmennirnir eru bersýnilega gríðarlega hæfileikaríkir íþróttamenn, ekkert mikið aftar þeim sem eru úti sökum Covid, helsti munurinn er einmitt reynslan.
Síðustu 10 mín í fyrri hálfleik breyttu Króatar um taktík og byrjuðu að saxa grimmt á forskot Íslands og gerbreyttu flæði leiksins. Svo í byrjun seinni háfleiks varð staðan ennþá verri, en í svoleiðis kringumstæðum skiptir reynslan og getan til að halda höfði algjöru höfuðmáli. Því miður þá gjörsamlega kolféll bæði vörnin og sóknin. Það voru mörg ótímabær skot, stimplunin gekk engan vegin, og þegar við fengum færi voru þau illa nýtt. Og vörnin var svipuð, menn voru ekki að færa sig saman, voru fintaðir auðveldlega, og markvarslan sem hafði verið svo frábær í fyrri háfleik virtist uppþornuð.
En sem betur fer tókst liðinu að snúa þessu við aftur að lokum og þrátt fyrir grátlegt tap þá mega þeir vera stoltir og framtíðin þeirra er klárlega björt. Og þessi leikur verður að mörgu leyti ómetanlegur í reynslubanka þeirra allra.
3 comments