Segir af sér formennsku vegna vændismáls

1 comment
  1. Ég er fylgjandi lögleiðingu á vændi en þetta er mjög sóðalegt. Gerðist reyndar áður en hann var formaður SÁÁ skilst mér(veit ekki hvað hann var að gera áður) en þá spyr maður sig hvort hann hafi sótt eftir þeirri stöðu til að hafa betri aðgang að viðkvæmu fólki? Væri ekki einsdæmi. (Viðbót: skvt [þessu](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/06/30/kosid_um_formann_eftir_hardar_deilur_innan_saa/) þá hafði hann setið í stjórn SÁÁ síðan 2016, s.s. á sama tíma og þessi vændiskaup áttu sér stað).

    Örlítið meira um þetta á [mbl](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022/01/24/hafi_keypt_vaendi_af_skjolstaedingi_saa/), meðal annars:

    > Þá seg­ist Stund­in hafa heim­ild­ir fyr­ir því að Embætti land­lækn­is hafi verið upp­lýst um málið árið 2020 og að minnsta kosti einn stjórn­ar­maður í fram­kvæmda­stjórn SÁÁ hafi vitað af mál­inu árið 2020.

    Hefði átt að segja af sér fyrir löngu ef hann vissi að aðrir vissu af þessu.

    > Þá hef­ur Stund­in rætt við kon­una sem nú er á bata­vegi eft­ir langvar­andi fíkni­efna­neyslu og seg­ist hún hafa leiðst út í vændi til að fjár­magna eit­ur­lyfja­neyslu sína og að á því tíma­bili hafi Ein­ar keypt af henni kyn­lífsþjón­ustu. Hún hafi ætlað að kæra en varð hrædd og nú sé málið fyrnt.

    Fatta þetta ekki alveg… Er hún að tala um að kæra hann fyrir vændiskaupin? eða eitthvað annað? Veit ekki hvað mér á að finnast um að einstaklingur sem auglýsir vændi kæri svo viðkomandi eftirá. En mér finnst þessi “sænska leið” sem við fylgjum mjög undarleg svo það kemur kannski ekki á óvart að ég eigi erfitt með að skilja þetta.

    “Fyrningin” hinsvegar fannst mér undarlegust… ákvað að [skoða málið](https://www.althingi.is/lagas/nuna/1940019.html) og komst að því að lögbrot sem leiðir af sér 1 ár eða minna í fanglesi (vændiskaup er mest 1 ár í fangelsi) fyrnist á 2 árum sem er miklu minna en ég bjóst við. Gerði mér alls ekki grein fyrir því að refsiramminn hefur áhrif á fyrningartíma.

Leave a Reply