Hvenær ætlar fólk sem er í stjórn að koma því í hausinn á sér að það er gífurlega mikil þörf á meira húsnæði, sem dæmi fyndist mér það ekki vitlaus hugmynd að fara flýta fyrir ýmsum áætluðum framkvæmdum á stórum hverfum, Blikastaðaland og Keldnaland koma ofarlega í huga, síðan þarf að koma í veg fyrir að lóðarhafa geti setið á lóðum án þess að gera ekkert með þær, einnig þarf síðan virkilega að fara íhuga það að borg og ríki fari í húsnæðisuppbyggingu þegar einkaaðilar draga í árarnar þegar það verður aðeins óhagstæðra að fá lán til íbúðauppbyggingar, því annars lendum við aftur í þessum vítahring sem hefur verið í gangi síðastliðinn áratug.

https://www.visir.is/g/20242557831d/verd-haekkanir-a-hus-naedi-fram-undan

by 2FrozenYogurts

1 comment
  1. Hætta að banna byggingu íbúða með:
    * Lóðum fráteknum fyrir einbýlishús.
    * Lóðum fráteknum fyrir atvinnuhúsnæði.
    * Frátekið svæði fyrir tóma garða í nýju fjölbýli.

    Eins og borgin talar um að þétta byggð þá bannar hún fyrirtækjum að þetta byggð af [ótrúlegustu ástæðum](https://www.reddit.com/r/Iceland/comments/12wflx8/comment/jhen1t9/?utm_source=share&utm_medium=mweb3x&utm_name=mweb3xcss&utm_term=1&utm_content=share_button).

Leave a Reply