
Núna þegar það fer að líða að æsispennandi forsetakosningum, þá langar mig að spyrja ykkur, hvað finnst ykkur um "Vigdísar-isma"? Sem sagt að forseti eigi aldrei að fara gegn vilja Alþingis? Forsetinn eigi að vera eitthvað "sameiningartákn", og vera bara þarna eins og eitthvað skraut á Bessastöðum, og taka mynd af sér með fólki.
Ég ímynda mér oft ef að Vigdís hefði setið í 16 ár í viðbót, þá hefðu "Fjölmiðlalögin" gengið í gegn, og við værum að borga Icesave í dag.
Ég hef ekki viljað meina að Guðni Th. aðhyllist "Vigdísar-isma", þar sem hann hefur verið opinn fyrir því að beita 26.gr stjórnarskrár ef nægar undirskriftir myndu berast honum.
Mér heyrist á bæði Jóni Gnarr og Katrínu að þau aðhyllist "Vigdísar-isma", þar sem þau bæði að staðhæft að þau stefni ekki á að vera pólitískir forsetar.
Hvað finnst ykkur? Viljið þið hafa forseta sem aðhyllist svo kallaðann "Vigdísar-isma"?
https://www.visir.is/g/20242552592d/segist-ekki-verda-politiskur-for-seti
by anoichtomyalos
1 comment
Mér lýst ekki á íhaldsemi og aðgerðarleysi. Og ef að forsetaembættið gerir ekkert nema vera pent þá finnst mér að við ættum bara að losna okkur við það.
Þannig nei mér finnst að forseti ætti að geta gripið inn í og notað vald sitt af og til. Kannski nokkrum sinnum á kjörtímabili, ekki í hverjum mánuði kannski. Vil ekki einhverjar klikkaðar öfgabreytingar eins og Ástþór Magnúson býður uppá, þótt það væri fyndið.