
Án djóks, hefur einhver hér farið á Suðurlandsbraut 34?
Manni er hent í pínulítið herbergi sem er sett upp eins og biðröð á flugvelli. Svona biðröð sem er hönnuð til að koma sem flestum manneskjum inn á flöt eins og mögulegt er. Svona biðröð sem maður hannar þegar maður er að spila tower defense leik og vill að creepin hlaupa sem flesta hringi og mögulegt er í kringum turnanna manns svo turnarnir geta skotið þá sem oftast.
Meira um þessar biðraðir. “En /u/MTGTraner þetta er allt í lagi ef það eru tveir metrar á milli”. Það eru ekki tveir metrar á milli, fólk hópast saman og er ekkert að pæla í þessu. Það er heldur ekki sanngjarnt að setja þetta á fólkið sem er að mæta þreytt á miðjum vinnudegi með her af börnum, það hefur ekki nógu sterkan framheila til að sjá um þetta. Ein manneskja tók niður af sér grímuna til að heilsa upp á kunningja sinn, en jújú ok, einstaklingsábyrgð.
Og leyfið mér að segja ykkur aðeins um börnin. Það er peningakast hvort þau séu með grímur yfir höfuð, hóstandi út um allt, dreifandi sjúkdómum. “En /u/MTGTraner blessuð börnin smita ekki og þetta er í lagi ef það eru opnir gluggar”. Börn smita. Og gluggarnir þarna eru ekki opnir.
Svo þegar manni er loksins sleppt lausum úr fyrsta sýkingarhólfinu þá er manni hleypt inn í annað, minna og verr loftrýmt herbergi. Og hvernig manni er snákað í gegnum herbergi skiptir engu máli þó það séu tveir metrar á milli þeim fyrir framan og fyrir aftan mann, því það er einhver hægra og vinstra megin við þig [(sjá mynd)](https://imgur.com/aytFHPR).
Það er bilun að hópa fólki saman sem er með covid einkenni í þessum kringumstæðum, þetta minnir mann á sögur um 19. aldar spítala þar sem fólk er að sýkja hvert annað. Ef ég var ekki með covid þegar ég fór niðreftir til að láta prófa mig þá var ég alveg örugglega kominn með það rétt áður en ég var prófaður.
Þegar sýnið var loksins tekið úr mér fékk ég að fara aftur til baka og labba framhjá öllum sem eru að bíða eftir sinni umferð. En ég fékk ekki hreint loft áður en ég þurfti að bíða tvisvar sinnum eftir að fólk var að loka veginum til að spritta á sér hendurnar. Mjög mikilvægt að stoppa til að spritta sig pínu eftir að þú ert búinn hanga inni og ekki snerta neitt í 20 mínútur.
13 comments
Mér varð einmitt hugsað þetta seinast þegar ég fór í PCR.
Og ekki hjálpar að undanfarið hefur sirka fimmti hver verið sannarlega Covid smitaður í þessari röð.
Ég bý þarna rétt hjá, og finn fyrir smithættu þegar ég hugsa út í það. Leikskólabörn, með grundvallar skilning á smithættu eftir smá fyrirlestur um handaþvott, ættu að geta útskýrt af hverju þetta er fullkomin vitleysa.
En nei, ég hef ekki farið þangað heldur bara keyrt og gengið framhjá þessari vitleysu. Það er samt nóg svo að ég finni fyrir kvíða um að þurfa að fara þangað alltaf þegar ég tek mótefnis-sjálfspróf svo ég geti nú unnið á skrifstofunni.
Mér reyndar finnst ekkert við aðstöðuna að saka, í byrjun covid virkaði þetta mjög vel og allir pössuðu 2m, núna er fólk bara ekkert að spá í þessu.
Það mætti klárlega vera einhver inni sem passar upp á að fólk sé að halda 2 metrum þegar komið er inn. Var fyrir einhverjum mánuði í testi og leið einmitt frekar illa með hvað fólkið fyrir aftan mig var mikið ofaní mér.
Í sambandi við að vera snákað í gegnum herberginu, það er talað um að þú þurfir að vera einhverjar 15-20mín innan 2m við manneskju til að amk fara í sóttkví, held að þó þú sért í nokkrar sec í 1m fjarlægð frá einstakling sé sýkingarhætta mjög lítil, sérstaklega þar sem þó ég viti það ekki, þá finnst mér lógískt að þú sért í minni smithættu til hliðar við manneskju heldur en fyrir framan hana.
Þetta. Er. Galið.
Eða bara það að allri höfuðborginni sé troðið saman á einn stað, þar sem oft er ógerlegt að komast í bílastæði og maður þarf að hanga úti í öllum veðrum þar til maður kemst inn.
Stór og góð framför þegar börnin fengu sérröð. Það að reyna að eiga við tveggja ára skæruliða í þessari röð er ekkert grín, ofan á allt hitt. En maður huggar sig við það að allir séu að gera sitt besta í erfiðum kringumstæðum.
Hélt fyrst þú værir að tala um aðstöðina á Suðurlandsbraut 34, enn ekkert af þessu sem þú varst að segja passaði við mína reynslu þar. Tók svo eftir villunni hjá mér… var ekki meðvitaður um það væri annar sýnartökustaður þarna rétt hjá. 😛
Það er galið að vera að standa í þessum endalausu sýnatökum, sóttkví, og einangrun.
24? Meinaru 32?
Ég fór þangað á föstudaginn (er ósmitaður), og það var gangur sem lá að útidyrum í síðasta herbeginu. Þú hefur kannski verið of pirraður til að taka eftir því?
Við köllum þetta í daglegu tali PCR sýkingarstöðina
Hahah já, mér hefur ekki dottið í hug að fara þangað eftir ómíkron. Þessar skurðgrímur sem allir eru að nota eru jafn nytsamlegar gegn ómíkron og að setja post-it miða á nebbann. Ef þú varst ekki með COVID áður en þú mættir, yrði það fljótlega lagað.
Allt í boði Willum „[*Það-á-að-leyfa-kórónuveirunni-að-ganga-án-sóttvarnatakmarkana*](https://i.imgur.com/TnvlQM9.png)“ Þórssyni, svokölluðum Heilbrigðisráðherra. Þetta hefur ekki verið neitt annað en meðvituð og útreiknuð sókn gegn heilsu þjóðar undanfarna tvo mánuði.
Fyrirsjáanlega óeffektívar aðgerðir, ekki einu einasta orði minnst á FFP2 grímur, og undantekningar fyrir 500 manna tónleikum og ótal hlaðborðum, 2 dögum fyrir jólahátíðirnar, þar sem stórfjölskyldur hittast og setjast við sama borð.
[Þetta er tímapunkturinn](https://i.imgur.com/XFUgP7W.png) sem Heilbrigðisráðherra ákvað að hætta að uppfæra vefsíðu almannavarna með tölfræði um yfirstandandi faraldur. Eftir að hafa uppfært síðuna tvisvar frá 23. – 1. janúar.
Ég myndi setja aðra ör sem benti á tímapunktinn þar sem ráðherra gerðist sekur um ofangreinda vítaverða vanrækslu á skyldum sínum, en ef vel er að gáð er hún er nú þegar brennd í ferilinn.
Ég var í útlöndum á seinasta ári og þurfti aldrei að labba í meira en 20 mín til þess að fara í test sama hvar ég var. Yfirvöld höfðu leigt húsnæði hér og þar, mest megnis stærri veitingastaði sem voru hvort sem er lokaðir (win win) og sett upp test stöðvar. Fór nokkrum sinnum i test og það tók svo stuttan tíma að labba á næstu stöð að ég nennti ekki einu sinni að kaupa heimapróf.
Á meðan er þetta skipulag hér svo einstaklega einkennandi fyrir einkabílsdrifna skipulagsstefnu okkar, að hrúga þjónustu á eitthvað frímerki og gera svo ráð fyrir því að allir komi þangað á bíl. Núll tillit tekið til annarra ferðamáta og núll pælt í að dreifa álaginu eitthvað. Þessi staður er orðinn svo útsprunginn að það er líklegast komin fylgni á milli veðurs og smittalna, ekki myndi ég nenna að bíða í klukkutíma úti í þessu veðri.
Hvað hafa margir smitast þarna?
Ég bý erlendis og fannst þetta gjörsamlega absúrd. Hér eru gámar um allt fyrir próf, maður pantar tíma kl 11:15 og það þýðir þá að enginn er á staðnum kl 11:15, engin röð og maður er farinn heim 15 mín seinna.
Fór til íslands um jólin og þurfti auðvitað próf á suðurlandsbraut til að komast heim aftur. Ég var svoleiðis handviss um að fá covid í kraðakinu þarna, svona fyrir utan það að veikt fólk stóð úti í þessari röð í klukkutíma í Desember. Galið.