Í dag er 20.Apríl, alþjóðlegi kannabis dagurinn. Ástæða þess að fyrir því að þetta sé kallað 4/20 má rekja til þess að fimm nemendur í San Rafael háskólanum hittust kl.16:20, eða kl. 4:20pm utan skólalóðarinnar. Seinna breyttist það í ákveðið "code" sem vísaði til kannabisnotkunar.

Frá síðasta 20.Apríl hafa unnist nokkrir sigrar, sá stærsti var þegar Þýskaland ákvað að lögleiða kannabis, þó með strangri löggjöf sem tók í gildi þann 1.Apríl síðastliðinn. Þá má hafa 25 grömm í förum sínum, og 50 grömm heima hjá sér. Einnig má rækta þrjár plöntur heima til einkanota.

Fordómar gagnvart kannabis neytendum fer minnkandi, en þó er langt í land. Þar sem kannabis er enþá ólöglegt, og margir líta á kannabisneytendur sem "dópista". Fólk á í hættu á að missa vinnuna og jafnvel mannorðið ef það talar opinskátt um kannabisneyslu sína, og eru margir enþá í feluleik með sína neyslu.

Mér finnst vanta mun meiri umræðu og sanngjarna fræðslu í samfélaginu um kannabis. En ég tel það rétt hvers fullorðins manns að neyta kannabis bæði í lækningarskyni og afþreyingarskyni. Hins vegar er ég á því að fólk eigi ekki að neyta kannabis fyrr en eftir 25 ára aldur, jafnvel að nálgast þrítugt.

Það hefur verið lítill áhugi á Alþingi síðustu ár að ræða þessi mál, en það var Pawel Bartozek þingmaður viðreisnar sem gerði það síðast árið 2017. Hins vegar, þá sprakk sú ríkisstjórn áður en að málið var tekið fyrir á þingi. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra sagði nýlega að það mætti skoða lögleiðingu á því lækningskyni, en lítið sem engin umræða hefur orðið síðan þá.

Gleðilegan 4/20!

by anoichtomyalos

1 comment
  1. Hefur verið einhver þróun á þessu ári í bæta lyktina sem kemur úr reykingum á þessu eða er þetta enn eins og að kryfja skunk?

Leave a Reply