Vill engin tímamörk á fóstureyðingum – Katrín hnykkir á hversu framsækin hún er.

by wrunner

10 comments
  1. getum við plís látið þungunarrofs umræðuna vera bara í ameríku þarsem hún á heima.

    Þetta er ekki stórt issue á íslandi, sama hvað culture warriors reyna að peppa það upp

  2. Sorry en þetta er of mikið fyrir mitt frjálslynda hjarta. Það að vilja leyfa dráp á fóstrum eftir 39 vikna meðgöngu, fóstrum sem geta fullkomlega lifað utan líkama móður sinnar, er villimannslegt, siðferðilega óverjandi og hefur ekkert með jafnrétti kynjanna að gera.

  3. Ég efast stórlega að hún sé að tala um casual fóstureyðingu á heilbrigðu fóstri af því foreldrarnir nenna því ekki.

  4. Það vantar alltaf í umræðuna afhverju fóstureyðingar eru stundum valdar.

    Í hvernig samfélagi myndir svo til engin hafa áhuga á fóstureyðingum?

    Þessi umræða með rétt eða rangt er yfirborðskennd.

  5. Er alveg sama um þetta mál þannig svo lengi sem að við förum ekki að hefta aðgang að fostureyðingum. En mér þykir athyglisvert og pinu fyndið að fyrrum formaður forræðishyggjuflokksins VG sé að tala um það að það eigi að treysta fólki.

  6. Plís, getur hún haldið kjafti. Það er akkúrat svona málflutningur sem fær fólk til að verða harkalega á móti öllum fóstureyðingum.

  7. Það er rosalegt tabú á Íslandi að eignast fötluð börn, enginn vill viðurkenna það. Held að fólk hefði allt annað viðhorf ef slík þjónusta væri einfaldlega ekki í boði. 

  8. Fóstureyðing 1 degi fyrir fæðingu = löglegt og siðlegt

    Barnsdráp 1 degi eftir fæðingu = ólöglegt og siðlaust

    Katrín og aðrir sem hafa þessa skoðun reyna að réttlæta hana með því að engin taki svona ákvörðun af einhverjum léttleika; og það er auðvitað rétt. En það fremur heldur enginn barnsmorð af einhverjum léttleika. Og ætti slíkt þá ekki líka að vera siðferðilega réttlætanlegt með sömu rökum?

    Ég held að það sé erfitt að rökstyðja að línan sé dregin þarna en ekki annars staðar.

Leave a Reply