
"Krónan mun bjóða viðskiptavinum sínum í Strætó á mánudag í tilefni af alþjóðlegum degi jarðar, sem haldinn er 22. apríl ár hvert.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Krónunni.
Frítt fyrir farþega með fjölnota innkaupapoka
Í tilkynningunni segir að framtak Krónunnar til dags jarðar í ár verði unnið í samstarfi við Strætó bs., og fá allir sem mæta með fjölnota innkaupapoka í strætó á höfuðborgarsvæðinu frítt far með vagninum á mánudag."
Greiðslukerfi Strætó er handónýtt, var ekki bara best að hafa frítt í Strætó á mánudag heldur en að hafa farþeganna að fíflum með svona framtaki? Hvern hef ég samband við til að sniffa nokkrar borgarlínur með stjórnendum Strætó?
by karisigurjonsson