
Hef rosalega mikið verið að spá í [sölu Alda music til universals](https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2022/01/25/taekifaeri_til_ad_margfalda_tekjur/). Þar tala þeir um tækifæri til íslensk tónlistarfólk en velti því fyrir mér er þetta jákvæð þróunn.
Erum við að horfa á tækifæri eða er íslensk útgáfa bara að fara að vera örlítill vasapeningur fyrir erlent stórfyrirtæki ?
3 comments
Gætum spurt Bubba.
Annars örugglega hið síðara, eða í besta falli engin breyting. Kaupendur eru bara að þessu til að græða, og munu einungis auglýsa það sem þeir græða á að auglýsa.
Það er engan ókeypis hádegismat að finna hjá fólki sem segir að það sé ekki til slíkur hlutur.
https://www.ruv.is/frett/2022/01/24/telur-islenska-tonlistarmenn-fa-staerri-hatalara
Í besta falli breytist ekkert. Þykir hæpið að Universal sé með einhvern brennandi áhuga á Íslenskri músík og grasrót, þykir enþá meira hæpið að það eigi eftir að dæla einhverjum pening í Íslenska artista. Algoritið þeirra sá eflaust bara einhvern smá gróða í þessu, að sanka að sér meiri músík til að hoard’a. Eins og dreki á gulli í fjallasal. Það er að minnsta mín skoðun, en svosem gott hjá honum Sölva að fá smá vasapening fyrir að selja Íslenska tónlistarsögu útúr landi. Fæ svipað óbragð í munninn og þegar dreifikerfi Mílu var selt til Frakklands á síðasta ári.