Hér er Twitter myndband frá Rikka G íþróttalýsanda þar sem hann talar um frábæran handboltastuðul á Coolbet: [https://twitter.com/RikkiGje/status/1483425377133465602](https://twitter.com/RikkiGje/status/1483425377133465602)

Hér er dæmi um skjáskot frá honum þar sem hann sýnir veðmál sitt á Coolbet (og taggar Coolbet): [https://twitter.com/RikkiGje/status/1486297180084260864](https://twitter.com/RikkiGje/status/1486297180084260864)

Egill Einarsson er annar aðili sem póstar reglulega eigin veðmálum og skjáskotin eru alltaf eins þar sem greinilega sést að hann er að nota Coolbet: [https://twitter.com/EgillGillz/status/1482072355686002688](https://twitter.com/EgillGillz/status/1482072355686002688)

Það er algjörlega augljóst að Coolbet er að greiða peninga inn á spilapeninga þessara manna. Tifelli Egils er mjög augljóst þar sem hann fór allt í einu að sýna þessi Coolbet skjáskot þegar Coolbet var að brjótast inn á markaðinn. Rikki G hefur nýlega verið mjög aktívur í þessu og sýnir nákvæmlega eins skjáskot og Egill.

Ég er að velta fyrir mér hvort þetta sé ekki á einhverju gráu svæði lagalega séð. Þessi innlegg eru aldrei merkt sem auglýsingar, og ég stórefa að þeir séu að telja þessar greiðslur fram sem tekjur.

6 comments
  1. Það er ólöglegt að auglýsa veðmálasíður, þannig þeir mættu tæknilega séð ekki merkja þetta sem auglýsingar, en eins og þú segir þá eru þetta mjög augljóslega auglýsingar og það er líka ólöglegt að merkja ekki auglýsingar. Þeir gætu fengið eh sektir fyrir þetta en það er örugglega smápeningar miðaða við það sem coolbet er að láta þá hafa.

    Til dæmis þá var [Íþróttafélagið Þór sektað 50þ kr. ](https://m.fotbolti.net/news/24-06-2020/thor-sektad-um-50-thusund-vegna-vedmalaauglysinga)fyrir nokkrum árum fyrir að vera með coolbet derhúfu í viðtali.

  2. Þetta fellur undir það sama og Neytendastofa hefur gert varðandi áhrifavalda og auglýsingar þeirra. Það er mjög skýrt hvað á að gera þegar svona auglýsingar eru gerðar ekkert grátt og vonandi þeirra vegna hafa þeir vit á að fara eftir því.

    Skatturinn gæti líka farið að gera athugasemdir ef að þeir telja þetta ekki fram rétt.

  3. Þetta er 100% ólöglegt og gegn reglum um kostaðar færslur, Neytendastofa er búnað benda á þessa hluti marg oft og sekta svokallaða “áhrifavalda” og blog síður.
    Ætti bara tilkynna þessa pósta til þeirra.

  4. Coolbet hefur ágætlega komist hja þessu eftir að fjölmiðlanefnd tók á nokkrum hlaðvörpum sem auglýstu fyrirtækið með því að byrja að framleiða föt í mjög takmörkuðu upplagi og hvergi fáanleg fyrir hinn almenna neytanda og eru því ýmis hlaðvörp nú til dags, aðallega íþrótta í boði “fatalínu” coolbet. En svo eru auðvitað líka til dæmi um skugga Auglýsingar af þessu tagi en líklega geta þessir einstaklingar skýlt sér á bakvið “fatalínuna”

Leave a Reply