Boðar mjög hert lög um notkun rafhlaupahjóla

by 11MHz

5 comments
  1. > Lagðar eru til breytingar á umfeðrarlögum þannig að svonefnd smáfarartæki eða rafhlaupahjól mega ekki komast hraðar en 25 km á klukkustund og hjól yfir þeim mörkum verða bönnuð í umferðinni.

    Hvernig væri að byrja á því að banna alla umferð farartækja sem komast hraðar en 90 km/klst?

  2. Hvernig væri frekar að byggja upp almennilega aðgengilega stíga sem eru aðskildir frá bæði gangandi umferð og bíla umferð?

    Það var frétt um daginn þar sem sagt að slysum á rafhlaupahjólum hefðu minnkað gífurlega, það þarf ekkert að herða lögin.

  3. Fyrir ykkur sem lesa ekki alla greinina, þá er þetta áhugaverðasta málsgreinin…

    Í athugasemdum sem koma fram í fjölmörgum umsögnum við málið er nefnt að fræðsla sé heppilegri er íþyngjandi lög. Bent er á að gangstéttarbrúnir, misfellur á gangstéttum og aðrar skyndilegar breytingar á undirlagi séu orsök fjölmargra óhappa á hjólunum og betra væri að bæta hjólastíga og hjólareinar en að íþyngja notendum. Þá hafi orsök slysanna og lítið verið rannsökuð.

  4. Áhugavert með að mikill hluti slysa virðast verða hjá börnum en á sama tíma virðist mesta púðrið fara í ölvun fullorðinna á þeim.

    Er enginn að hugsa um börnin? Æi jú það á að herða aldurstakmark, eins og það hafi einhvern tímann stoppað krakka í einhverju sem þau vilja gera.

  5. Svona rafhlauahjól eru stórhættuleg, Pínkulítill dekk og overall mikill slysahætta. Ég vildi óska þess að þjónustur eins og hopp myndu bjóða uppá alvöru rafreiðhjól, sem eru uþb hundraðfalt öruggari.

Leave a Reply