
Nú hefur verið mikil umræða um forsetakosningar 2024 hérna á r/Iceland.
Ég er því svolítið forvitinn um hvað notendur r/Iceland myndu kjósa ef kosið yrði til forseta í dag, þannig að ég rissaði upp tveim spurningum á Google Forms.
Hér birtast svo niðurstöður jafnóðum
Hef þetta alveg nafnlaust þannig að það er svo sem hægt að kjósa oft, en vonandi getum við fengið smá hugmynd um hvernig við hérna á reddit erum að sjá þessa baráttu þróast 🙂
by Abattage
3 comments
Get ekki kosið 🙁
Ég kýs þann sem er líklegastur til að koma í veg fyrir að Katrín verði forseti
Hafa ber í huga að Reddit hefur alla jafna verið lélegt úrtak til að endurspegla þýðið.
Ólíklegra t.d að finna hér miðaldra Arnar Jóns fólk og Kata Jak er t.d mjög óvinsæl hérna þar sem r/Iceland er alla jafna vinstri sinnað (eða amk í miðjunni) þar sem Katrín er ekki vinsæl þessa dagana.