Eins mikið og ég er hlyntur samgöngum hvenær ætlar þetta fólk(strætó/rvk) í raun og veru að horfast í augu við vandann og sjá að kerfið er vandamálið, ekki fólkið.

Myndi persónulega frekar ferðast um með leigubíl/skutlara heldur en að ferðast um í þessu áldósum.

[https://www.frettabladid.is/frettir/unglingar-fresti-bilprofi-og-fai-arskort-i-straeto-i-stadinn/](https://www.frettabladid.is/frettir/unglingar-fresti-bilprofi-og-fai-arskort-i-straeto-i-stadinn/)

10 comments
  1. Er bíllaus sjálfur, klæði mig vanalega í föðurlandið, dúnúlpuna og thermal hanskana til að taka hopphjól í frostinu frekar en að taka strætó

  2. Keypti mánaðáskrift hjá strætó og er farinn að geta nýtt þetta ansi vel, fer vanalega ekki í langar ferðir en þetta nýtist mjög vel í stuttar ferðir, ef að ég er að fara ganga 20 min leið þá skoða ég strætó og hann er vanalega sneggri ef að ég er ekki í úthverfisrassgati. Ég hataði þetta áður eins og flestir virðast þegar að talað er um þetta, veit ekki hvort að strætó sé betri eða hvort að væntingar mínar voru svo litlar

  3. Eða gefa fólki yfir 70 frítt strætókort, það er frekar skrítið að vera með strangar kröfur til þess að fá bílpróf en þegar kemur að því að meta hvort þú sért nægilega öruggur á eldri árum þá skipta þær kröfur ekki lengur máli einhverra hluta vegna

  4. Þetta fólk ætti að prófa að búa í úthverfi. Fátt sem veitir unglingum þar jafn mikið frelsi og bílpróf.

  5. Þetta er skref í rétta átt hiklaust. Ég veit að kerfið er gallað en þeir eru að vinna í því með til dæmis borgarlínunni og þessu. Við gætum í raun rökrætt í mörg ár um hvar við eigum að byrja á að lagfæra kerfið en snilldin er að þeir eru að byrja já smátt í hverju skrefi þannig séð, en allt eru þetta skref í rétta átt að mínu mati. Ef þeir gera strætó samkeppnishæfari við bílinn með þessu þá er það gott.

  6. Strætó/borgarlína mun alltaf vera óæðri vara í hagfræðilegum skilningi. Fjölskyldubíl er tilbúinn þegar þú ert tilbúinn 24/7. Það er ekki hægt að keppast við það. Þetta er staðreynd. Auðvitað má hlúa að öðrum ferðmátum líka en valið á að vera frjálst. Ríkið er með afskipti af öllu sem við gerum. Ferð með fjölskyldubíl er eitt af síðustu vígum ríkisafskipti af hegðun samfélagsins. Einhver stjórnmálamaður á ekki að stjórna okkar frelsi til að ferðast um landið með leiðarkerfum og takmarkanir á hvenær þær þær ferðir gerast.

  7. Ég bý á Selfossi en vinn í Reykjavík – ég tek strætó alla leiðina í vinnuna. Vakna sirka 6:30 til að ná að taka strætó kl 7:20. Er komin í Mjóddina um 8:15 og tek 17 í vinnuna. Er komin oftast um 8:40.

    Það tekur mig klst að keyra þetta í einkabíl – en það er hættulegra að sofna við stýrið en í strætó 😉

    Er búin að gera þetta svona síðustu 10 ár.

  8. Eðaaa hvernig væri bara ekki best til að drullast til að byggja upp lestarkerfi hérna?? Þetta er svo mikið skíta sker þegar kemur að almennilegum samgöngum!

    Hætta þessu rugli með plebba bílinn sem er sífellt rétt svo við það að fara a hausinn

  9. Mér hefur líka fundist það ætti að vera frítt fyrir námsmenn í strætó fyrsta mánuð skólans. Kemur alltaf rosaleg aukning í traffík, bara slæmt fyrir alla.

Leave a Reply