https://www.visir.is/g/20222215063d/haekkun-husnaedislana-gaeti-hlaupid-a-hundrudum-thusunda-a-ari

10 comments
  1. Hlæ alla leið í bankann (eða úr bankanum?) með föstu vextina mína á óverðtryggða láninu mínu næstu þrjú árin. Finn samt innilega til með öllum sem spenntu bogann of hátt í fasteignakaupum síðustu ár, ég myndi ekki meika að opna heimabankann minn mánaðarlega ef ég væri með verðtryggt lán.

  2. Mér fannst bara eitthvað rosalega glatað í vor, þegar ÍSB var fyrstur til að hækka vexti, að þeir tilkynntu svo hvað þeir væru að hagnast mikið. Fyrstir og fremstir í vaxtahækkunum og græða svakalega. Margt þarna sem ég skil ekki og þetta væl hljómar frekar mikið eins og það komi frá einhverjum virkum í athugasemdum en whatever.

  3. Þetta á eftir að versna, litlir gjaldmiðlar þurfa að hafa hærri vexti til að koma í veg fyrir fjármagnsflótta og það er ennþá verið að hækka vexti erlendis

  4. Ég veit ekki af hverju fólk hélt að sögulega lágir vextir væru eitthvað til framtíðar.

    En ég hef alltaf jafn gaman af því hvað sérfræðingarnir sem höfðu rangt fyrir sér eru fyrstir til að fá að útskýra stöðuna í dag.

    Þeir verða svo fengnir í viðtal til að segja okkur að enn og aftur beri verkafólk ábyrgð alfarið á verðbólgunni og kröfur þeirra ógni efnahagsstöðugleikanum. Ætli Ásgeir hóti að hækka stýrivexti enn meira ef almúginn getur ekki drullast til að sýna smá ábyrgð á verðbólgunni eftir að hans aðgerðir ýttu svona myndarlega undir hana fyrir stuttu.

  5. Hlýtur þetta ekki að leiða til lækkunar eða stöðnunar a húsnæðisverði? Fólk hefur varla efni á að kaupa fyrir jafn háar upphæðir og í dag ef afborganirnar verða töluvert þyngri af jafn háu láni?

  6. Óverðtryggðir breytilegir vextir hljómar eitthvað eins og önnur útgáfa af verðtryggingu. Um leið og það kemur verðbólga þá eiga þessir vextir eftir að hækka í takti við það. Mögulega minni sveiflur en þessir vextir eiga eftir að haldast eitthvað í hendur

  7. Ég: “Ég vil hærri laun og lægra verð, þetta er ekki flókið!”

    Allir aðrir: “Við líka!”

    Hagkerfið: “Well… About that…”

    Ég: “Bara ég þá”

    Allir aðrir: “Booo! Verkföll, enginn ekkert!”

    Ég: 😕

Leave a Reply