Líf Sævars hangir á bláþræði – Vísað frá af læknum sem segja hann haldinn sjúklegri viðurkenningarþörf og athyglissýki

by No_nukes_at_all

5 comments
  1. bara svona til að ræða eithvað annað en forsetakosningar.

    Vanhæfir læknar eða Munchausen syndrome?

    Eða kanski hvorugt og allt bara grift ?

  2. “Vonir standa til að vinna Sævars, sem leysti mál sitt sem sumir virtustu læknar – og tveir nóbelsverðlaunaðir spítalar voru engu nær í, geti haldið áfram vinnu sinni eftir að búið er að bjarga lífi hans, við að greina erfið mál og þróa skapandi lausnir í samvinnu við sérfræðinga í góðgerðarstarfi fyrir sjúklinga sem er ekki sinnt eins og honum, verði eðlilegt framhald þessa verkefnis.”

    Er einhver að kaupa það að þessi gaur er bæði með greiningu sem ENGINN hefur haft áður OG hann meðfæddur Dr. House?

  3. “Guys, ég er með lausnina: Það þarf að skera mig í sundur og setja mig aftur saman, hvað er svona fokking flókið við það?”

  4. Ég hef aðeins fylgst með þessu máli. Það er vissulega ekki óalgengt að læknar kalli sjúklinga móðursjúka ef þeir finna ekki greiningu á viðkomandi.

    Oft er Sævar skýr og sannfærandi en svo koma póstar inn á milli sem virka tæpir. Ef þetta er allt í hausnum á honum, þá þætti mér það satt að segja ansi merkilegt. Ég held að það sé best að leyfa honum að njóta vafans. Því ef þetta er raunverulegt og hann er ekki að fá neina hjálp þá er það vægast sagt hræðilegt.

Leave a Reply