
Þetta lyktar langar leiðir af ákveðinni örvæntingu – að nú sé verið að reyna að draga kanínur upp úr hattinum á lokametrunum úr því hann mælist aldrei nógu ofarlega til að vera taktíski kosturinn móti Katrínu.
Ég held reyndar að þetta sé alveg örugglega satt. Það væri ótrúlegur amatörismi hjá teymi Katrínar ef þau myndu ekki taka þessi samtöl í von um að sterkir mótframbjóðenduir hættu við framboð. Mér þætti reyndar ekki ólíklegt að einhver hafi einmitt tekið álíka samtal við Ólaf Jóhann og það hafi orðið til þess að hann ákvað að fara ekki í framboð.
Í rauninni er ekkert óeðlilegt við þetta heldur. Rétt eins og alls konar fólk skorar á einstaklinga að gefa kost á sér þá er líka fólk sem varar þá við ef framboðið er mögulega ekki góð hugmynd. Menn meta það auðvitað sjálfir hvort það sé góð hugmynd að fara í forsetaframboð ef Katrín er að bjóða sig fram – og Baldur er augljóslega ekki sigurstranglegur gegn henni þegar þetta samtal á sér stað.
Það er eiginlega stóra fréttin í þessu. Þegar Baldur stígur fram á sínum tíma er mikið gert úr teyminu sem hann hefur með sér. Væbið er svona að "við erum með bestu ráðgjafana og bestu maskínuna". Það er stórmerkilegt ef niðurstaða þessa teymis á þessum tíma var að hann væri sigurstranglegur gegn KJ.
by svansson
5 comments
Er ekki sammála að mér finnist þetta lykta af örvæntingu, fannst þetta bara koma frekar lógískt hjá honum. Það var verið að spyrja frambjóðendur hvort þeir hefðu fengið áskoranir að hætta við framboð og hann svaraði því.
Mér finnst síðan ekkert eðlilegt að fólk innan annarra framboða skori á aðra að sleppa því að gefa sig fram eða draga framboðið tilbaka, fyrir mér er það meira á við hegðun bully’s. Mér finnst samt auðvitað ekkert að því að fólk út í bæ láti skoðanir sínar á framboði af eða á í ljós.
Fannst samt önnur svör frá Baldri koma frekar örvæntingslega frá honum, fannst hann og Jón koma frekar illa út úr kappræðunum og Höllurnar komu að mér fannst best úr þeim, þá sérstaklega Tómasardóttir.
Finnst þetta nú frekar bara vera viðurkenning á því að þessi kosningabarátta er ein sú mest pólitíska um forsetaembættið hingað til.
Sérstaklega þegar aðrir frambjóðendur gefa líka í skyn að fleiri en framboð Katrínar hafi verið að stunda þetta.
Þetta er búin að vera frekar ljót kosningabarátta og miklu ljótari á bakvið tjöldin en það sem að hefur þó lekið fram í dagsljósið.
4 frambjóðendur eru með kosningamaskínur á bakvið sig sem að byggja á stjórnmálaflokkum að hluta, aðrir virðast vera að dýfa fingrunum í opinbera sjóði þar að auki.
r/Iceland er bergmálshellir fyrir stuðningsmenn Baldurs þannig þú talar fyrir daufum eyrum
Hvað segir þú. Ekkert óeðlilegt við það að þrýsta á að fólk fari ekki gegn þínum manni í forsetakosningum?
Það þykir vissulega eðlilegt í fullt af löndum en hingað til ekki á Íslandi.
Baldur er með gríðarlega flott teymi i kringum sig en mómentið þegar hann fer a flæming með hvað hann kaus i seinna Icesave var killer fyrir framboðið hans.