Í framhaldi af fyrri þræði um að 85% íbúða kostar meira en 60m þá kemur í ljós að mun fleirri eru að kaupa ódýrar íbúðir án þess að taka lán, líklegasta er þetta lið sem er að kaupa íbúðir til leigu, hvort sem það er skammtíma eða langtíma leigu, eða jafnvel fjárfestar sem eru að bíða eftir því að seðlabankinn lækki stýrivexti og að snjóhengjan sem er búinn að myndast síðustu ár brotni og húsnæðis verð á íslandi ríkur upp eins og það gerði á covid árum og í kringum 2017. Sem fasteigna eigandi þá óska ekkert meira en að fasteigna verð lækki eitthvað því þetta ástand er fáránlegt og það er alveg ótrúlegt hvað yfirvöld hvort sem það eru bæjarfélögin eða ríkið sitji og geri lítið til að aðstoða við að byggja meira.

by 2FrozenYogurts

2 comments
  1. Afhverju ættu þeir að lækka fasteignaverðið, þetta er þvílik snilldar innkoma fyrir sveitarfélög að með því að hækka fasteignaverð þá hækka fasteignagjöldin og meiri innkoma í kassan hjá þeim

  2. Það á að banna fólki að eiga fleiri en eitt íbúðarhúsnæði, helst í gær.

Leave a Reply