
Mér finnst þetta oft bleikur fíll í herberginu þegar ungt fullorðið fólk (t.d. millenials sem ég tilheyri) ræðir lífskjör og framfærslukostnað. Vissulega er húsnæðismarkaðurinn afar skakkur á suman hátt, en margir vina minna sem kvarta hæst eru með vond bílalán fyrir teslur eða polestar, og sökkva sér í yfirdrátt fyrir tenerife ferðir (sem er btw mest óspennandi áfangastaður sem ég get hugsað mér).
Hvað finnst redditerum?
by facom666
3 comments
Já, þetta er galið! Hversu heimskt er fólk eiginlega? Hvaða vextir eru á bílalánum núna, 15 eða 18%?
Ég verð að viðurkenna að ég er svo illa gefinn að mér finnst rándýr bílakaup vera eitthvað það al heimskulegasta í lífsgæðakapphlaupinu, og tala nú ekki um þegar fólk er að steypa sér í skuldir á 15% vöxtum eins og virðist vera lenskan á Íslandi núna.
Tek svo undir varðandi Tenerife, það virkar á mig sem staður þar sem fólk fer ef það vill fá það sama og heima, en bara betra veður. Á það bæði við um Breta og Íslendinga, fara á íslenska bari með íslensku fólki, Bretarnir fá sér full english morgunmat með brúnni sósu á hverjum degi.
Væru bílar svona dýrir ef það væru ekki til bílalán?