Er það ekki staðreynd að hann Frosti Logason elur upp á öfga hægri stefnu á Íslandi?

by AsgeirGunnars

7 comments
  1. ég held það sé óumdeilt, kominn með Trump húfu og allt..

    https://imgur.com/a/eNhqIrq

    leiðinlegt bara hvað þetta er ameríst hjá honum, alveg einsog hjá NordicMasculinity vini hans; lélegt að þeir kópera bara amer´siku menningarstríðin í staðinn fyrir að vera bara hægri menn á íslenskum forsendum.

    Frosti t.d notar reglulega orðið “libbi” og “libtard” sem hefur nkl núll merkingu í íslensku samhengi.

  2. Ég þekki hann ekki en hvað er hann að gera sem er öfga hægri?

  3. hann er ekkert öfga hægri, hann er bara búinn að missa tengsl við íslenskann raunveruleika og sér allt í einhverjum twitteresque binaries.

  4. Allt virðist öfga hægri ef það er ekki öfga vinstri. Að þú hafir áhyggjur að hann sé að ala upp nasista eins og þú segir í einu kommentinu, er ansi brenglað.

  5. Gaurinn hefur alltaf verið galtóm tunna sem glymur ekki lítið hátt í, allur ferill hans sem fjölmiðlamaður samanstendur af honum að vera þver útí eitthvað sem hann fyrirlítur og hatar

    Það voru trúarbrögð á sínum tíma þegar hann var þokkalega líbó, og núna verðandi orðinn gamall og íhaldsemin farinn að hellast yfir hann þá er hann auðvitað búinn að finna Jesú samhliða Alex Jones career pivotinu

    Hann hefur alltaf einkennst líka að því að vera apa eftir ræðupunkta og takta frá frægari þverhausum vestanhafs, hann var mjög hrifinn af Hitchens of Dawkins um árið og núna eru það mannvitsbrekkur eins og Jordan Peterson

    Annaðhvort er hann blákaldur grifter eða með vitsmuni á við hurðarhún

    En ég stórefast að hann sé að ala eitthvað eða í broddi fylkingar varðandi nokkurn skapann hlut, allt sem hann gerir er bara það sem einhver annar er að gera verbatim nema bara minna sjarmerandi

  6. Áhugaverðar yfirlýsingar hjá vinstrisinnuðum í dag. Það er enginn einfaldlega hægrisinnaður lengur, þú ert öfgahægrismaður.

    Það eru ekki lýðræðislegar kosningar lengur. Það er bakslag í baráttunni og upprisa öfgahægrisins.

    Réttrúnaðurinn, öfgarnir og skautunin er sturluð.

  7. Ef þér finnst að hann vera öfga hægrimaður þá ert þú líklega öfga vinstrimaður

Leave a Reply