Ég hef séð sjúkrasögu þessa manns mikið bregða mikið fyrir á Fésbókinni -þeas. baráttu Sævars Poetrix við Íslenska heilbrigðiskerfið. Ég fór og skoðaði karolinafund síðuna hans þar sem að hann hefur fundið ofurlækni í Tyrklandi sem fann eitthvað að honum sem enginn í Íslenska heilbrigðiskerfinu gat fundið:

https://www.karolinafund.com/project/view/6201

https://preview.redd.it/rpo6zyxfgoad1.jpg?width=800&format=pjpg&auto=webp&s=48b34296939e57adc4e3949058e6c8db414ae9c1

Ég er að velta því fyrir mér, er heilbrigðiskerfið að bregðast manninum með að vísa honum aftur og aftur í burtu, segjandi að þetta sé í hausnum á honum eða hefur hann fundið sér lækni í Tyrklandi sem er tilbúinn að búa til ástæðu til að skera upp svo að kúnnanum er létt?

Mundi eftir frétt þar sem að systir hans sagði að hann hafi skáldað að miklu ævisögu sína sem er kannski að lita álit mitt. Er bara að velta þessu fyrir mér þar sem að þetta mál er mikið í fjöl- og samfélagsmiðlum.

https://www.visir.is/g/2014141019895/gagnrynir-bok-brodur-sins-hardlega

by Gudveikur

2 comments
  1. Tvennt í þessu: Sævari hefur margoft verið vísað með lögregluvaldi frá Landspítalanum vegna ógnandi hegðunar, og læknarinir þar fundu ekkert að honum frekar en læknarnir í Þýskalandi, Indlandi o.fl.

    Þessi spítali í Tyrklandi er einkarekinn og “for profit”.

    Það er hægt að draga ákveðnar ályktanir af þessu, en ekkert hægt að fullyrða.

  2. Hann er verulega andlega veikur. Kannski að þessi “aðgerð” í Tyrklandi hjálpi honum eitthvað sem væri gott fyrir hann.

Leave a Reply