Um daginn var svaka umræða hér að fjárfestar hefðu keypt 87% af íbúðum á árinu. Allir að bölva xD, fjárfestum og að það þurfi að fara setja einhver kommúnistalög á almmening ef þeir gætu nú sparað meira en meðalmaður og keypt aðra íbúð.
Ensvo kemur í ljós að um er að ræða hlutfall nýbygginga þar sem meðalfmverð er vel yfir milljón, hlutfall fyrstu kaupanda er yfir 20-35% og stór/stærsrur hluti af þessum fjárfestum eru félagsleg fasteignafèlög og þá þagna allir. Er það vegna þess að það fittar ekki inn í þeirra hugmyndir hvað “allt er rotið”á Íslandi?

by gurglingquince

3 comments
  1. Fólki er almennt sama um staðreyndir og raunveruleikann.

    Því líður illa og verður að fá að kenna einhverjum um. Jákvæðar fréttir leyfa manni það ekki.

    Ég talaði um þetta fyrir ári síðan: https://www.reddit.com/r/Iceland/s/Sl2PSHAWlL og benti á að þessir “fjárfestar” eru langmest ríkið, sveitarfélög og félagsstofnanir. En fólk vill hunsa eða gleyma því.

  2. Afskaplega er lítið af upplýsingum í þessari svar grein, miðað við [greininni](https://www.visir.is/g/20242597088d/naerri-niu-af-hverjum-tiu-i-budum-verid-keyptar-af-fjar-festum-a-arinu) sem hún er að svara.

    Í snöggu bragði sýnist mér svarið byggja á því að leika sér með meiningu “nýbyggingar” og “íbúð sem er nýkomin á markað” – en ég get ekki verið viss. Þessi “grein” frá ritstjórn vb er svo innihaldslítil að ég get ekki einusinni stækkað gröfin sem hún vísar í til að geta lesið hvaða sögu þau vilja segja.

Leave a Reply