Taktleysi 101

14 comments
  1. “Hrímuð stemning hjá Björgunarsveitunum! 25% afsláttur af Regnpokanum ef þeir finna líkin í dag.”

  2. Fyrir utan taktleysið þá er þetta er svona regnpoki sem fæst allstaðar í asíu á 10 dollara. Flott AliExpress hönnun.

  3. Smekklaust, það á að refsa fyrir svona auglýsingu og setja eitthvað fordæmi í siðferðisrétti svo fyrirtæki endi ekki á því að mega sponsora stórslys

  4. Tver influencerar láta lífið á skelfilegann hátt, og gjafavöruverslun notar mynd af björgunaraðgerðum til að auglýsa sjálfan sig á samfélagsmiðlum.

    Firring samtímans í hnotskurn?

  5. Sá þetta inn á facebook hóp í morgun þar sem er rætt um markaðsfræði, búið að fjarlægja þetta þaðan, en var menneskja frá fyrirtækinu sem sagði að þetta átti að fara í loftið í framtíðinni, ekki í dag, en vegna mannlegra mistaka var þessu póstað í dag, og eins og einhver bennti á “átti þetta að vera sett inn sem ímynduð leit í mars?”

  6. Mér hefur alltaf fundist taktleysi vera undarleg ambaga.

    Ljóslega á þetta að vera íslensk snörun á *tactless*, en íslenska orðið taktur er ekki skylt enska orðinu tact.

    Kannski er það ónærgætni hjá mér að pæla í þessu hér.

  7. Foooookk. Hversu gjörsamlega laus við allan raunvöruleika þarftu að vera til þess að pósta þessu og halda að þetta sé geggjuð hugmynd?

  8. Nú ætla ég að stuða einhverja. Þetta er jú taktlaust með öllu en svo er maður að lesa um þetta á fréttamiðlum (áður en maður sá þetta á Reddit) og hversu mikið fólk er móðgað og svo framvegis. Mannlegur harmleikur hefur gerst, fjölskyldur eru í sárum og auðvitað má skrifa frétt um það, en hversu margar fréttir þurfa að vera um þetta mál áður en það telst vera smekklaust útfrá þeim auglýsingatekjum sem fréttamiðlar fá fyrir hvern smell.

    Fyrst er það fréttin um það að flugvél sé týnd (þetta er nauðsynlegt)
    Svo þyrpast inn fréttirnar, ég tek Vísi sem dæmi þar sem ég tel 24 greinar merktar undir „Flugslys við Þingvallavatn“. Þar má nefna dæmi fyrirsagnir eins og:

    Vísbending um að lík sé fundið í Þingvallavatni (til hvers er fréttin ef það er ekki staðfesting?)

    Fjallað um farþega vélarinnar í erlendum miðlum (til hvers er fréttin?)

    Voru allir á sama aldursbili og tengdir fatalínu (já þessir menn voru með vinnu…)

    Margar þessara upplýsinga kæmust fyrir í eina grein þegar vinnu við þetta mál er lokið og aðstaðdendur hafa fengið eitthvað andrými til að jafna sig. Ég hef aldrei skilið þennan fréttaflutning, ef einhver fær ósæðagúlp í bílferð, keyrir upp á spítala því honum líður illa og deyr svo þar þá er engin frétt um það. Ef einstaklingur fær ósæðagúlp þegar hann keyrir bíl, líður yfir hann á leiðinni á spítalann svo bíllinn keyrir útaf og hann deyr eftir það þá eru það allavega 4 fréttir.

    Bíll keyrir útaf við veg – Ástand mannsins í bílslysinu – Maðurinn í bílslysinu er dáinn – Nafn mannsins er lést í bílslysinu (með fylgir kertamynd).

    Í þessu umhverfi er því algjörlega smekklaust af fjölmiðli að fjalla um smekkleysi verslunar að fjalla um töskuna sína í miðri leit. Þetta er bara algjörlega smekklaust á alla kanta.

    Að lokum: Samúðaróskir til þeirra sem þekktu til þessara einstaklinga er létust og ástvina þeirra.

    PS. Þegar Birna Brjánsdóttir hvarf og fréttamiðlar skrifuðu svona 30 greinar á dag þangað til að hún fannst og maðurinn var í haldi á meðan tóku miðlarnir allar auglýsingatekjurnar í sinn vasa meðan þeir hugsanlega spilltu rannsóknarhagsmunum, þá hefðu fréttamiðlar átt að greiða fyrir jarðarförina. Bara mitt „take“.

Leave a Reply