Laun forstjóra Icelandair hækkuðu um næstum helming milli ára þrátt fyrir yfir 13 milljarða tap

10 comments
  1. Merkilegt hvað svona menn eru góðir í að ná millistéttinni með sér í lið gegn verkalýðsfélögunum.

  2. Side note: meinar fólk að launin hans hafa hækkað um 50% eða 100% þegar það segir “hækkað um helming”?

    Ég sjálfur myndi segja að launin hans hafi tvöfaldast ef þau hafa hækkað um 100% og lækkað um helming ef þau hafa lækkað um 50%.

    Finnst eins og fólk noti báða frasana án þess að gera greinarmun en ég er ekki viss

  3. Bogi:

    >„Launa­hækk­­an­ir hér á Íslandi hafa ver­ið, leyfi ég mér að segja, al­­gjör­­lega út úr kort­inu miðað við sam­keppn­is­lönd­in. Síð­ustu tólf mán­uði hafa þetta verið ríf­­lega tíu pró­sent á árs­grund­velli meðan við erum að horfa upp á núll til tvö pró­­sent hjá sam­keppn­is­lönd­un­­um. Þannig að þetta verður alltaf mjög krefj­andi verk­efni fyr­ir ís­­lensk fyr­ir­tæki að standa í þess­­ari sam­keppni en við erum að vinna í þessu mód­eli, þessu ís­­lenska mód­eli þannig að tekju­mó­d­elið verður að end­­ur­­spegla það.“

  4. Einkennilega vel launaðir þessir Bogar Nilsar og Eggertar Þórar þjóðfélagsins. Þá sérlega þegar augum er litið á þann mikla rekstrarhalla sem mörg þessi fyrirtæki hafa mátt þola þessi hallæri síðustu tvö. Veit einhver hér hvað hluteigendum finnst um þetta? Hvað hafa þessi fyrirtæki greitt fjárfestum í arð?

  5. “það sé við­var­andi áhætta fyrir félagið að lyk­il­starfs­menn hætti þar sem þeir fá ekki nægi­lega vel greitt fyrir störf sín, en þrír úr fram­kvæmda­stjóri Icelandair Group hafa hætt störfum frá síð­asta aðal­fundi”

    Hvað með það!

    Eins og það sé ekki nóg af fólki sem vantar vinnu! Auglýsið bara stöðurnar lausar og fólk mun flykkjast til þess að taka þær!
    Þetta er ekkert nema fyrirsláttur fyrir óhefta græðgi!

  6. Það er reyndar markverður árangur að félagið skuli ekki vera farið á hausinn m.v. hvernig faraldurinn fór með önnur flugfélög – og það án þess að nýta sér ríkistryggða lánalínu.

  7. Maður spyr sig, hver var sparnaðurinn hjá félaginu með því að lækka laun flugfreyja og annarra ásamt uppsögnum. Þegar laun hans og annarra stjórnenda voru hækkuð á móti?

Leave a Reply